9.1.07

-upptökur og stinni stuð!-

Árið byrjaði með pompi og prakt. Kandidatsritgerð frá híbýlum Vébergs skilað þann 4. jan, á sama degi og Jamie og Fayney, mínir kæru vinir og tónlistarmenn, flugu inn frá London. Síðustu dagar hafa því verið dásamlegir. Sigtryggur Baldurs slagverksfræðingur hefur borið fram snilli sína á silfurfati og var síðasti upptökudagur með honum í gær. Við héldum því upp á trommu"sessionið" í gærkveldi og fórum á Kaffi Duus í Reykjanesbæ en við erum að vinna í stúdíó Geimsteini hjá Rúnna Júl.
Kaffi Duus sumsé framreiðir besta fiskinn á Íslandi og þótt víðar væri leitað. Áttum yndislega kvöldstund með tilheyrandi bransasögum og hlátrasköllum. Mér leið eins og Hædí endurfæddri mitt í miðinu á sögum þeirra um skandala á heimstúrum. Ég hafði frá litlu að segja enda hef ég hingað til ekki þurft aðstoð sterkra lyfja til að koma mér í gírinn og stöðvaði sjálfa mig hið snarasta þegar ég var við það að fara að rifja upp eitthvað "really funny" sem gerst hafði hjá mér í Vindáshlíð hér back in the days :)
Ég iða öll í skinninu við þetta ferli en lögin hafa færst yfir á annað plan við að koma með þetta hráa góða inn. Í dag er verið að editera trommur og ég er að afgreiða síðustu tónlistarmennina sem koma að plötunni hér heima. Svo hljóðblöndum við í Lundúnaborg í febrúar og mars og á meðan á því stendur þarf víst að huga að því að styrkja sambönd og reyna sitt besta til að koma kvikindinu á lappir úti í heimi.
Ég hlakka svo til að koma þessari plötu út!!! Kominn tími á kellu.
Svo er ég bara að kenna örlítið meðfram plötuvinnunni og mun aðstoða Óla vin með sönginn í nýjustu uppsetningu Menntaskólans á Akranesi nú í janúar og byrjun febrúar, áður en ég held aftur út. Það ætti að vera mega stuð. Peningarnir vaxa heldur ekki á trjánum sagði einhver. Merkilegt þetta með aurinn. Hann er svo erfiður við mann stundum. Ætli maður fari ekki að stofna vaxtareikning hið snarasta og láta þetta vinna fyrir sig eins og afi Guðmundur segir alltaf sposkur á svip: "ef þú sparar penníið,þá sparar pundið sig sjálft!"

V

0 ...og gammar geysa!:

Menningarhornið

  • Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
  • Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
  • Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
  • Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
  • Kommúnan, Vesturport *****