13.2.07

-Veddantínus-

Dagur elskenda er á morgun, hinn yfirgengilegi Valentínus. Þar sem ég ligg heima í flensu er ansi ólíklegt að ég sitji á glæsilegum veitingastað annað kvöld, með kampavínsglas í hendi og kertaljós sem bjarmar á kollinn á viðmælanda mínum. Né heldur á ég von á blómvendi eða hjartalaga súkkulaði með tilheyrandi korti sem inniheldur fyrirfram ákveðnar klisjur samtímans.
Mig langar helst til að vera á móti Valentínusardeginum eins og hann er orðinn og þá sérstaklega erlendis, en það blundar í mér lítill rómantíkus sem vill láta stjana við sig í kertaljósadýrð og heimatilbúnum mat. Þó svo að hversdagsleikinn beri með sér litlar ómetanlegar stundir (sem hafa miklu meira vægi en allt þetta hallelúja í kringum einn Valentínusardag), þá er gaman að breyta til, hafa fyrir hlutunum og reyna á sig til að öðrum líði vel.

Ég hlakka til að komast frá þessari flensu og aftur út til London. Ég þrífst illa í veikindum, líkaminn hlustar ekki á höfuðið sem vill gera eitthvað af viti. Ég sendi spúsa mínum sms í vinnuna með sérþörfum úr apótekinu og matarbúð og svo þegar allt er komið í hús, þá hef ég ekki lyst á neinu. Eina stundina langar mig til að spila spil, aðra er ég með óráði uppi í rúmi, hálfslefandi og léleg. Ég hef staðið að söngstjórn á Akranesi fyrir söngleikinn "Almost Famous" og í vikunni sem leið þá gott sem leit ég framhjá hita,hósta og sleni svo að allt gæti rúllað sem skyldi. Nú segir líkaminn stopp og ég sé fyrir mér að ég rúlli inn í hjólastól á frumsýninguna hjá þeim á föstudaginn,veifandi eins og Englandsdrottning.

V

0 ...og gammar geysa!:

Menningarhornið

  • Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
  • Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
  • Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
  • Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
  • Kommúnan, Vesturport *****