-obbobbobb-
Mín kæra Rakel átti afmæli nú á föstudaginn og af því að ég er ömurleg vinkona þessa dagana, þá steingleymdi ég henni. Ég býst við að hún hafi átt ánægjustund með sínum heittelskaða í Köben og hugga mig því við það. Til lukku mín elskulega!!! Ég biðst innilega afsökunar á framferði mínu sem er gjörsamlega óafsakanlegt, hefur aldrei komið fyrir áður og mun ekki koma fyrir aftur. Ég skelf á beinunum því frökenin er eflaust urrandi brjáluð og slefandi af bræði.
Frumsýning á Almost Famous var á föstudaginn, sama dag og Rokkarinn varð 26 ára og ég var í kvíðaástandi alla síðustu viku.
Annars gekk þetta með eindæmum vel og ég er afar stolt af krökkunum mínum. Törnin búin í bili og nú mun allur minn tími fara í að sleikja Rokkarann upp.
V
18.2.07
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Menningarhornið
- Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
- Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
- Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
- Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
- Kommúnan, Vesturport *****

0 ...og gammar geysa!:
Skrifa ummæli