Maður mössunar
Þá er komið að því. Goðið mitt hann Þolli Berg útskrifast næstkomandi laugardag sem lögfræðingur með Cand.jur. gráðu frá HÍ. Ég er ekki í hópi þeirra sem snobba fyrir gráðum en ég ber heilmikla virðingu fyrir mönnum sem eru með burtfarar og kennarapróf í píanóleik (sem er BMus gráða út af fyrir sig) og skella sér svo í lögfræðina og rúlla upp kandidatsritgerð á lokasprettinum. Ekki spilir svo fyrir að maðurinn er með eindæmum kynþokkafullur og góðhjartaður. Og hann ku vera minn!
Hér sést hann rífa í sig öldur og hamagang með árum og upphandleggsvöðvum. Þessi mynd er táknræn lýsing á öllu því sem hann tekur sér fyrir hendur. *þessi mynd mun eflaust ekki lifa lengi í bloggheimum þar sem mér verður hent öfugri út er maðurinn sér þetta-ærið tilefni þarna fyrir vinahóp hans að hella hrauni yfir kauða*
Við munum að sjálfsögðu efna til fögnuðar í tilefni af þessu og ég hlakka til að stíga léttan dans með elskunni minni en mér líður eins og ég sé sjálf að útskrifast. Skellti mér m.a.s. í Kringluna í dag sem ég hef ekki gert í langan tíma, og keypti mér flík.
Þolli minn, til lukku. Þú ert töff.
V

0 ...og gammar geysa!:
Skrifa ummæli