-Ballad of the Londoner-
Evening falls on the smoky walls,
And the railings drip with rain,
And I will cross the old river
To see my girl again.
The great and solemn-gliding tram,
Love's still-mysterious car,
Has many a light of gold and white,
And a single dark red star.
I know a garden in a street
Which no one ever knew;
I know a rose beyond the Thames,
Where flowers are pale and few.
*James Elroy Flecker
Sá þetta ljóð í lestinni í morgun. Það átti eitthvað vantalað við mig. Saklaust og fallegt.
Skrapp til Kaupmannahafnar um helgina og átti yndislegan tíma með Rakel minni og Krullanum. Við erum á undan áætlun í hljóðblöndun svo ég leyfði mér að hella úr skálum kærleikans og rifja upp gamla takta með Rokkaranum og Curlie Sue. Rocky hefur komið sér vel fyrir með spúsa sínum í Köben og við höfðum "pleisið" út af fyrir okkur þar sem ektamaðurinn var að fljúga alla helgina.
Magnað að hugsa til þess að þetta kvikindi ætli að gifta sig í sumar. Ég felldi tár nokkrum sinnum í ferðinni við tilhugsunina og þá sérstaklega þegar við vorum að ræða kjólinn, tónlistina og tja.. framtíðina. Langt síðan ég hló svo mikið og þá er nú mikið sagt þar sem ég er stöðugt með bros á vör. Good times ***** -gef þessu heilar fimm astroglide. Alle tides!
Kom heim seint í gær og er nú hrokkin aftur í gírinn í hljóðverinu. Fjölskyldan mætir hér í páskafrí næsta föstudag svo að það verða endurfundir í stórborginni. Amma og afi verða m.a.s. með í för. Alltaf jafn gaman þegar við troðum okkur í eitt rúm,sófa og gólf. Þröngt mega sáttir svitna!
Annars líður senn að heimför. Farin að sakna Þollans ansi mikið. Það er ansi mikið að gera hjá stráknum þessa dagana. Hann verður sem betur fer búinn að ljúka HDL prófunum þegar ég kem heim og því sé ég fram á afslöppun, páskaát og almenna gleði með yndinu mínu. One can only hope!
V
27.3.07
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Menningarhornið
- Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
- Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
- Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
- Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
- Kommúnan, Vesturport *****

0 ...og gammar geysa!:
Skrifa ummæli