Inspector Gummi
Jæja góðu hálsar!
Brósi minn Guðmundur Egill er að bjóða sig fram í embætti inspectors í MR á næsta ári. Þeir sem eiga vini,vandamenn og áhugasama einstaklinga í MR.... ýti undir viðleitni þeirra til Guðmundar. Hann er gull af manni, vinnusamur og skemmtilegur.
Þetta yndi heldur nú úti heimasíðu: www.inspectorgummi.com og hvet ég ykkur til að kíkja á þetta og segja öllum frá sem hafa kosningarétt innan skólans :)
Hann á skilið að taka þetta. Ömurlegt að vera í London núna þegar svo mikið gengur á hjá honum. Hefði annars staðið þarna í hlaði skólans og dreift bæklingum, hrópandi nafn hans hástöfum.... sem, eftir á að hyggja, hefði kannski tafið frama hans töluvert.
Áfram Gummi!!!
www.inspectorgummi.com
V

0 ...og gammar geysa!:
Skrifa ummæli