16.3.07

komin til london

-"isn´t it time for me to leave - before you make time for needing me?"-

Loksins er ég nettengd hér í hljóðverinu. Komin til Lundúna sumsé og allt í gangi, hljóðblöndun og almennt glens sem fylgir því að vinna með þessum dásemdarmönnum.

Veðrið ber með sér vott af vori, örlítið svalur andvari en sólin sér um að hita allt upp svo að maður finnur nú lítið fyrir Lundúnavindinum. Hljóðverið er staðsett í West Hampstead sem er afskaplega skemmtilegur staður í norðvestur London. Beint á móti hljóðverinu er barnaskóli en skólakór þess sama skóla söng einmitt í einu laganna minna. Í dag var t.d. grímudagur hjá þeim svo að þessar elskur voru málaðar allaveganna í framan og heilu fylkingarnar af djöflum,englum og litlum "Britneyjum" tóku á móti mér þegar ég mætti í morgun. Það er mér óskiljanlegt að ég sé barnlaus því að eggjastokkar mínir höndla ekki of mikið áreiti af þessu tagi. Samt tekst mér að halda þessu í skefjum. Alveg magnað.

Neðar í götunni er allt krökkt af huggulegum kaffihúsum og æðislegum veitingastöðum; kínverskum,japönskum,indverskum,persneskum, ítölskum og áfram má lengi telja. Verðið er svo fjarri því sem gengur og gerist á Íslandi svo að maður leyfir sér miklu meira í þeim geiranum hér úti.

Nú er stund milli stríða og ég leyfi Fayney að vinna án mín. Ég á það til að benda á eitthvað sem ég vil laga strax, á meðan hann er að gera eitthvað allt annað svo að ég gaf sjálfri mér pásu og minni mig stöðugt á að þolinmæðin þrautir vinnur allar. Ég hef nú verið ansi þolinmóð hingað til. Það tekur lúmskt á mann að taka að sér endalaus verkefni sem snúa ekki beint að manns eigin efni en bjarta hliðin á því er að sjálfsögðu að ég er að gera það sem ég elska. Það er margt í mörgu. Ég ætla að hætta að kvarta.

Í kvöld er svo stefnan sett á útstáelsi. Marta, vinkona Aldísar systur, er komin hingað frá París og Aldís pantaði voða fínt borð fyrir okkur á einhverjum rómuðum stað. Eigum pantað kl.22.00 svo að ég ætti að ná því. Mér var bent á að vera fínt klædd og tek ég því sem ábendingu um að ég sé alltaf eins og álfur út úr hól. Ó jæja, einhvers staðar verða álfar að vera.

V

0 ...og gammar geysa!:

Menningarhornið

  • Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
  • Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
  • Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
  • Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
  • Kommúnan, Vesturport *****