13.3.07

ut vil eg

-út vil eg-

Jíha! Nú er skvísan bara að pakka niður fyrir Lundúni. Myndatakan í gær var mjög skemmtileg, mikið stelpustuð í gangi og estrógenið allsráðandi. Lýsingin og annað var í algjöru samræmi við það sem um var rætt svo ég var í afar góðu skapi. Eftir að tökum lauk dró ég yndið mitt á Eldsmiðjuna og þar var gúffað í sig. Veddi notar hvert tækifæri til þess að fagna!

Nú held ég á vit ævintýranna og iða öll í skinninu við að komast aftur til Drollunnar í austri... Aldís systir ætlar að sækja mig í kvöld á flugvöllinn og hlakka ég mikið til að sjá systu enda um tveir og hálfur mánuður liðnir síðan ég sá þetta fagra fés. Mjög óhollt að fá ekki systraskammtinn sinn reglulega.

Svo fer ég smá útúrdúr ferð til Köben þegar ég hef harkað af mér hljóðblöndun og dvel hjá Rakel minni. Krullinn verður einnig þar á svæðinu svo að það mun ekki væsa um mig í örmum þessara yndislegu vinkvenna sem ég á.

Ísland, best í heimi... en nú þarf að hvíla sig á því.

V

0 ...og gammar geysa!:

Menningarhornið

  • Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
  • Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
  • Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
  • Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
  • Kommúnan, Vesturport *****