8.3.07

serðu tren fyrir skoginum?

-...sérðu trén fyrir skóginum?-

Nú mun myndataka fyrir plötuna eiga sér stað á mánudeginum í næstu viku, degi áður en ég fer út. Silja Magg ljósmyndari og frænka mín sér um ljósmyndun og Agnieszka fer nú um allan bæ leitandi að rétta dressinu fyrir herlegheitin. Fríða María, snillingur, sér um förðunina en hún gerði einmitt fína Védísi úr mér fyrir Nýtt Líf hér fyrir einhverjum mánuðum. Þá var ég rifin úr joggaranum og drullunni skellt á mig og út kom einhver voða álfaprinsessa sem ég hafði ekki kynnst áður.

Ég hef lengi haft eina hugmynd um útlit plötunnar í maganum sem mér verður að takast að glæða lífi í. Tónlistin á plötunni er að mörgu leyti um það að vaða eldinn og brennisteininn, skítinn og slorið en koma jafnframt sterkari út úr því. Nú hljómar þetta ansi dramatískt, eins og ég hafi setið inni á Kleppi en það ku nú ekki vera raunin. Hins vegar hafa allir sína djöfla að draga og þeir eru smávægilegir í augum annarra en andlega þá þarf maður alltaf að vinna úr erfiðleikunum, tala opinskátt um missi, sorg, hjartasár, eftirsjá og annað sem allir hljóta að upplifa einhvern tíma á lífsleiðinni. Ekki snýst allt þó um einkalífið því margt er að í heiminum sem maður hefur enga stjórn á, aðra en að tjá sig um það og láta skoðanir sínar í ljós. Maður er því miður ansi lítið peð þegar kemur að óréttlæti í heiminum. En! ef maður hugsar stórt, lætur í sér heyra og gerir hlutina af einlægni og góðum ásetningi..... þá er ekki hægt að tapa. Úrslit þessa uppgjörs á plötunni eru sumsé á sinn klisjulega en svo sanna hátt, að skíturinn er hluti af dæminu og ef hann væri ekki til staðar þá skini sólin ekki eins skært þegar hún loksins kemur.



En aftur að útliti plötunnar. Það verður að endurspegla það að manneskjan hefur burði til að blómstra í hvaða aðstæðum sem er. Því er ég að leita að tré sem stendur mitt í miðju hrauni eða auðn og sólin skín í gegnum greinarnar eins og til að fagna tilvist þess. Myndatakan yrði að vera framan á sólina svo að silhouette effect yrði allsráðandi. Svo myndi ég hugsanlega standa þar fyrir miðju og stræka einhverja pósu. Því stendur til að ég sæki Agniezsku á eftir sem verður mér innan handar í leitinni að trénu! Ég ætla að skoða hraunið sem liggur beggja megin Reykjanesbrautarinnar með smásjá og gera úr þessu smá roadtrip og kjafta eitthvað við þessa elsku á leiðinni.

Ég er svo spennt að klára þetta kvikindi!

V

0 ...og gammar geysa!:

Menningarhornið

  • Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
  • Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
  • Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
  • Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
  • Kommúnan, Vesturport *****