Himinn og haf
Dásamleg helgi að taka enda. Ég skundaði til Reykjanesbæjar með múttu minni á föstudaginn til þess að aðstoða hana við þýðingar þessa helgina, á mjög svo athygliverðum matsgerðum sem meta færni heyrnarlausra/skertra ungbarna og barna. Jafnframt er þetta notað til að sjá árangur þeirra eftir kuðungsígræðslu sem er eitt merkilegasta tækni og læknisfræði undur samtímans að mínu mati. Þá eru heyrnarlaus börn tekin nokkurra mánaða og grætt í þau sérstakur “kuðungur” sem starfar líkt og kuðungar í miðeyra heyrandi fólks. Hann tekur við hljóðbylgjum og barnið er nógu ungt til þess að þróa með sér heyrn. Ótrúlegt, ekki satt?
Ég hef alist upp í heimi heyrnarlausra þar sem amma mín var heyrnarlaus frá fæðingu og hefur ætíð sinnt félagsstörfum innan Félags Heyrnarlausra og var þar fyrsti kvenkyns formaður svo fátt eitt sé nefnt. Þetta er óneitanlega mikil fötlun en þar kemur táknmálið inn í, varalestur og margt fleira sem er hinn eðlilegasti samskiptamáti og á stundum mun skemmtilegri og meira “blátt áfram” en allt þetta kvak og blaður í kringum okkur. Engu að síður er þetta fötlun og amma hefur þurft að rýna í merkingu tónlistar t.d. og leggur sig alla fram við að taka þátt í tónlistarlífinu sem einkennir þessa fjölskyldu og hefur alltaf gert. Hún situr á fremsta bekk með bros á vör og dáist að hverjum þeim hreyfingum sem hún verður vitni að og finnur stundum taktinn eftir hljóðbylgjunum sem skella á veggjum og gólfi.
Kuðungurinn er s.s. skref í rétta átt til framtíðar og réttur hvers einstaklings sem þarf á að halda.
Ég mun halda heim á leið aftur í kvöld en Barði og Agnieszka eru að bjóða mér og spúsa mínum á Emilie Simon sem er hin ljúfasta söngkona. Ég hlakka mikið til. Eilítið svekkt yfir því að missa af Helenu Eyjólfs í Salnum en hún er uppáhalds! Ég ætla að senda henni alla mína góðu strauma því hún er yndið eitt og fabjúlus karakter.
Tónleikar ættu að hressa heimilisfólkið en við lágum bæði í klósettskálinni alla vikuna með ælupest. Huggulega parið skiptist á klósettferðum og lá þess á milli uppi í sófa klappandi hvort öðru með erfiðum til þess að sýna einhverja samkennd. Þetta er víst að herja á landann núna. Mæli með tamiflu, lyfseðilskylt, en tengdó var ekki lengi að rigga upp góðum skammti og því er þetta allt liðið hjá.
Annars er ég afskaplega góð á sálinni einmitt núna. Vakin upp með söng og knúsi frá pabba og ljúffengum mömmumat sporðrennt ofan í mig milli vinnutarna. Mútta greyið hefur verið svelt af dætrum sínum og því tel ég þessar þýðingar vera ágætis yfirskin fyrir það að hafa mig nálægt sér. Siffi bróðir er að venju hvers mann hugljúfi en hann situr bara í stól og les skólabækurnar á meðan stóra systir leggur undir sig skrifborðið hans. Gummi bróðir er á Akureyri með MR en skólafélagið, Framtíðin var í heimsókn hjá MA. Haldin var ræðukeppni í gærkveldi og MR vann og hann valinn ræðumaður kveldsins. Hann er allrosalegur kappinn, er hann kemst í ham.
Fjölskylduhúsið Goðasteinn stendur á kletti við sjóinn. Fáeinir metrar niður að strönd. Ég horfi út á hafið, Keflavík til vinstri, Reykjavík til hægri. Lítil trilla siglir framhjá. Það er eilítil þoka yfir núna en ég sé þó glitta í vin minn, Snæfellinn og lífið er eitthvað svo gott.
V

0 ...og gammar geysa!:
Skrifa ummæli