9.4.07

-veikir og sterkir-

Gleðilega páska lömbin mín!

Ég hef átt yndislega páskahelgi með mínu fólki, vinum og fjölskyldu.

Sá loksins Hildi Þurí, nýbakaða dóttur Hönnu og Indriða og er sú litla svo sannarlega fögur og nett. Mikil hamingja þar á bæ.

Páskaeggjaleitin átti sér stað að morgni páskadags í Goðasteini þar sem glöggt kom fram að gömlu hjúunum hefur hrakað í því að fela blessuð eggin. Í gamla daga var þetta ansi erfitt og maður hljóp sveittur um stofuna og garðinn úti til að finna kvikindið. Nú var hins vegar útileit og öll komu þau í ljós við fyrstu leit. Reyndar földu mamma og pabbi eggin sín fyrir hvort öðru og þá var þetta miklu vandaðra hjá þeim. Loks höfðu allir fundið súkkulaðisprengjuna og við náðum rétt svo að narta í þetta áður en kallað var til páskalambsins. Kvöldið fór svo í annað páskalamb hjá tengdó og því erum við ansi feit og sæl orðin eftir hátíðirnar. Því tókum við okkur til í morgun og skelltum okkur í Laugar. Ég synti kílómetra og Þollinn tók á því í tækjasalnum. Við hittumst svo í heita pottinum að því loknu og tókum törn í gufunni. Yndislegt!
Ég átti reyndar erfitt með að rata í nýju anddyri laugarinnar en ég hef ekki stigið fæti þarna inn í mörg ár. Ég syndi venjulega í hverfislauginni hér fyrir ofan Þingholtin. Starfsfólkið horfði á mig eins og ég væri nýfædd og vorkenndu mér að ég tel, verulega. Ég borgaði mig inn, beið eftir lykli eða mynt eða einhverju sambærilegu og tíminn leið. Ég hóstaði svo upp úr mér einhverju til að vekja á mér athygli og eldri kona spurði hvort það væri eitthvað fleira. Ég bað um lykil og hún hló. "Það eru lyklar í skápunum." Sjö ára krakkar við hlið mér hlógu. Nú jæja, já. Unglingsstúlkur með maskara niður á kinnar komu úr lauginni í sturturnar og skoðuðu sig gaumgæfilega í speglunum. Ég þurfti þess nú ekki, enda svo mikil skutla. Ég færði þrengsli bikinísins á afturendanum alfarið yfir á að það hefði minnkað í þvotti og kærði mig kollótta um sannleikann.
Ég komst að lokum ofan í laugina og synti minn kílómeter og varð hvumsa við að heyra lítið barn kalla mig "konu". "Færðu þig, konan er að synda." Og allt eftir þessu. Ég var í fínasta bikiníi og hafði m.a.s. mátað settið heima fyrir eftir margra mánaða pásu og fengið samþykki frá unnustanum. Maður kemst víst ekki hjá því að vera "kona" þó maður sé í neonbleikri setteringu. Ég hef því ákveðið að vera ein af þessum sterku, láta mig álit annarra engu varða og vera bara eins og ég er hverju sinni og hlæja framan í krakkana, sundstarfsmenn og all hina sem mæla á sér appelsínuhúðina.

Þetta fann ég á mbl. Mikið til í þessu.



Svo fagna ég nýjum framboðum í pólitíkinni og treysti því að allir sem þarna fara fram beri hag landsins fyrir brjósti. Gott í þeim öllum. Samkeppni í framboðum eins og á öllum öðrum sviðum, er bara af hinu góða.

V

0 ...og gammar geysa!:

Menningarhornið

  • Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
  • Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
  • Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
  • Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
  • Kommúnan, Vesturport *****