-earth intruders-
Keypti mér nýjasta Bjarkarlagið á grapewire.net á 88 kr. Þetta er ansi skemmtilegt hjá stelpunni! Þetta minnir mig reyndar svolítið á Trabant. Nú er þetta framtíðin, að selja tónlist sína einungis á netinu. 88 kr. er ekki upp í nös á ketti svo að maður vílar það ekki fyrir sér.
Það hefur ansi margt á daga mína drifið. Er stöðut að melta nýjustu mixin af komandi plötu minni og breyta, laga og bæta. Verð að halda geðheilsu þess á milli og hef því reynt að synda svolítið,farið út á land og unnið fyrir móður mína í uppsetningu og þýðingum. Aldís, mín eina og kæra systir kom frá London í síðustu viku og hélt upp á afmælið sitt á sumardaginn fyrsta. Við áttum dýrindis tíma saman fjölskyldan og blásið var til fögnuðar í Goðasteini á þessum merkisdegi. Svo verður erkiengillinn Gabríel,2 ára á morgun og því var afmælispartý í gær til heiðurs honum.
Ég varð svo vitni að hræðilegu slysi í Laugum, fyrir um tíu dögum. Þar stakk ungur maður sér ofan í grynnri hluta sundbrautarinnar beint við hlið mér. Vinir hans voru sem betur fer með honum og héldu honum upp við sundlaugarbakkann. Það blæddi heilmikið úr höfði hans og hætta var á að hann hefði hálsbrotnað. Eitthvað voru tungumálin að skarast en þeir voru pólskir og töluðu hvorki íslensku né ensku svo að það var eilítið vesen að fá nafn mannsins og nákvæma lýsingu á því hvað hafði skeð. Ég reyndi eitthvað að tjá mig um þetta en sá því miður ekki allan aðdragandann. Ég hef hugsað mikið til stráksins síðan og held ég hringi bara upp á spítala og tali með pólskum hreim til að fá upplýsingar um heilsu hans. Gæti alveg virkað :)
Svo er ég titluð "yfirgæsari" Rakelar Sifjar og því eru teikn á lofti um æðisgengna gæsun á næstunni. Ég hef legið margar andvökunæturnar og heilaþrumað yfir þessu. Stúlkan sú verður tekin fyrir!
Veðrið er ansi grátt og ég á bágt með að einbeita mér í þýðingum eins og er. Væri eflaust verra ef sólin skini úti.
Innblástursorð dagsins: You can´t always get what you want. But if you try sometime you might find.....
you get what you need.
V
23.4.07
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Menningarhornið
- Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
- Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
- Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
- Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
- Kommúnan, Vesturport *****

0 ...og gammar geysa!:
Skrifa ummæli