27.4.07

-Þorgerður Katrín-

...er dásamleg. Ég hef nú alltaf haft þá skoðun en var svo að lesa Sirkus þar sem hún ræðir um daginn og veginn og mér þykir hún svo eðlileg og skemmtileg týpa. Hún fer á Sálar og Stuðmannatónleika því það var löngu planað í vinahópnum og var þar með ekki heima á "vaktinni" fyrir komandi kosningar. Er þetta ekki einmitt það sem fólk á að gera? Sýna sig og sjá aðra og sýna poppurunum stuðning í leiðinni. Þar fyrir utan er hún frábær fyrirmynd, glæsileg kona og þegar fólk talar um að það vanti fleira kvenfólk í stjórnmálin þá kann ég vel að meta góðan karakter þegar ég sé hann, hvort sem það er kona eða karl. Hún er einmitt í framlínu Sjálfstæðisflokksins og þeir eiga þar mikinn gullmola.

Og til þeirra sem vilja endalaust tyggja tugguna með framhaldsskóla"klúðrið" þá hafði hún allavega manneskjuna í að draga það til baka og gera betur. Það er ekki sjálfgefið í stjórnmálum. Einhver karlinn hefði eflaust þrjóskast við og þefað lyktina úr sjálfs rassi með bros á vör. Jafnvel þá menn eins og Jón Baldvin sem gerði heldur betur í buxurnar um daginn og kallaði menntamálaráðherra "ljósku". Eflaust ágætis karl. Það mætti þó segja honum pent að þetta herrans ár er 2007, ekki 1907 og það er ekkert pláss fyrir rembu á Íslandi lengur. Einnig mætti benda honum á að hann þarf að vera lyftistöng fyrir flokk sinn Samfylkinguna á tímum kosninga, í stað þess að rífa hann niður í skrifum sínum eftir að hafa setið á landsfundi þeirra. Gagnrýni er góð en ekkert af þessu flokkast undir þá ágætu list.

V

0 ...og gammar geysa!:

Menningarhornið

  • Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
  • Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
  • Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
  • Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
  • Kommúnan, Vesturport *****