-Veddi að púla-
Jæja, kellan er byrjuð í ræktinni. Fyrsta vikan búin og ég hef náð að yfirstíga allar mínar hræðslur gagnvart risa tækjasölum og spiffuðu fólki á sterum. Skemmtilegt fólk er þar að finna (sem innbyrðir víst ekki stera), sniðug tæki (fyrir eirðarlaust fólk eins og mig) og besta einkaþjálfara í heimi (Sonja Bergmann). Hefur þetta opnað fyrir mér nýjar víddir. Það eru gjörsamlega allir í umræddri stöð. Gamlir skólafélagar,samstarfsmenn og kunningjar. Ég hræddist það mest að þurfa að tala mikið við fólk í svitagallanum með lekandi horið og rauðhlaupin augun, en svo er ég bara hugguleg á að líta þegar ég hef púlað svolítið. Líður jafnvel eins og hefðardömunni í Pride and Prejudice sem gekk yfir heilan akur til þess eins að sitja kaffiboð, svo þetta er hið besta mál.
Ég kíkti á Nouvelle Vague í Hafnarhúsinu um daginn með krúinu og var ég afar hrifin af flutningi þeirra á vel völdum "eighties" lögum. Ég á nokkur lög með þeim á ipodinum og hef lengi vel unað mér við tóna þeirra en þarna sá ég aðra hlið á þeim sem mér líkaði. Svo var kíkt út á galeiðuna með stelpunum. Ég er dottin úr þjálfun, það verður að segjast. Ég veit ekki hvaða stað ég á að fara inn á og flestir þeirra spila teknó og arfaslaka dansmúsík en B5 var alveg að gera sig og Gyða og systir hennar voru mjög flottar í skífuþeytingnum. Það skemmir ekki að svo glæsilegar dömur skuli standa fyrir þungum bassa og stemmningu. Ég reyndi að kenna Rússa spænsku án árangurs, farið var yfir ýmis málefni í vinahópnum og að endingu sá ég spúsa minn í hillingum og skundaði heim í bólið.
Af þessu öllu má því lesa að ég er í millibilsástandi. Ég ætlaði að "zone out" á Íslandi eins og maður orðar það víst og hlusta á mixin fyrir komandi plötu og melta þetta rækilega. Ég var svo lukkuleg að fá vinnu hjá móður minni við þýðingar og uppsetningu á prófahlutum fyrir heyrnarlaus börn og börn með kuðungsígræðslu. Því hef ég ekki kleprað enn og ræktin hjálpar mér allverulega í þeim efnum. Svo er bara að koma plötukvikindinu út og get ég lofað áhugasömum að hún kemur út í sumar.. og ekkert múður!
Innblástursorð dagsins:
V
3.5.07
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Menningarhornið
- Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
- Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
- Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
- Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
- Kommúnan, Vesturport *****

0 ...og gammar geysa!:
Skrifa ummæli