15.5.07

-stjórn-

"Stjórnin er fallin. Stjórnin heldur velli. Framsókn hefur spilin í hendi sér. Vinstri flokkarnir eru á glugganum hjá Geir." Þetta hefur ómað í höfði mér síðustu daga. Ég andaði léttar þegar ég gat horft á náttúrulífsþátt á RÚV í gærkveldi um nefapa. Það var auðmeltanlegt og spennandi. Karlkyns nefapi heldur uppi mörgum kvenkyns neföpum og sér fyrir búi og börnum. Hann tyggur lauf af trjánum en marghólfa magi hans sér til þess að hann getur framkallað matinn aftur upp í munninn og tuggið hann aftur. Svo sveiflar hann sér milli trjánna og fylgist með augngotum kvenna sinna og setur í þær eftir áhuga og nennu. Nefaparnir fengu m.a.s. íslensk nöfn hjá þulinum. Annar karlkyns nefapi tróð sér inn á svæðið hjá Jóa,(fyrrnefndum leiðtoga). Sá hét Villi. Villi notaði alltaf tækifærið þegar Jói var í burtu og setti í dömurnar hans Jóa. Þær voru rendar alltaf til í tuskið, mér til mikillar furðu en ætli leiði hafi ekki verið kominn í samband þeirra og Jóa. Tæpum sex mánuðum síðar fæddust lítil Villabörn sem báru sterkan svip föður síns. Jói var grunlaus. Loks fór það svo að Jói missti alfarið völdin og Villi gekk burt með herskarann allan af skvísum og ungöpum sem áður tilheyrðu Jóa. Ég sá fljótt að pólitík er að finna alls staðar. Hún verður alltaf barátta um völd og þeir í minnihluta gera sér dælt við hinn helming ríkjandi stjórnar þegar tilefni er til.
Við setjum x við fýsilegan flokk, skellum miðanum í kassann og bíðum svo í 1 - 2 vikur eftir því að sjá hver raunveruleg stjórnarmyndun er,jafnvel lengur. Á meðan eru viðreynslurnar óbilandi milli flokka og hýr augu bíða eftir að láta setja í sig. Við höfum víst lítið um þetta að segja eftir kosningar. Náttúrulögmálið hefur sinn gang.

V

0 ...og gammar geysa!:

Menningarhornið

  • Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
  • Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
  • Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
  • Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
  • Kommúnan, Vesturport *****