Kjörfylgi
Mikið er nú gott að ný stjórnarmyndun sé að eiga sér stað. Sjálfstæðismenn og Samfylking eru með mesta kjörfylgið svo að meirihluti þjóðar ætti að vera sáttur við þetta fyrirkomulag. Ég legg til að kveinandi fólk slaki aðeins á og leggi kalt mat á stöðuna. Stuðningur við Framsókn er að dala og flokkurinn þarf klárlega að draga sig í hlé og endurmeta sína stöðu. Er það ekki augljóst? Ég finn til með þeim en það er nóg komið af væli. Það verður enginn svikinn af því að taka mark á kjósendum. Svona er staðan og við ættum að líta björtum augum fram á veginn.
V

0 ...og gammar geysa!:
Skrifa ummæli