20.5.07

Innblásin

Margrét Pála var gestur Evu Maríu þennan sunnudaginn en hún er jú stofnandi Hjallastefnunnar svokölluðu. Mér þykir mikið til hennar koma og þetta viðtal jók enn á álitið. Ég elska frumkvöðla sem láta verða af stórum hugmyndum sínum á meðan vindar blása á móti. Þegar ég byrja mína fjölgun mannkyns, þá fer frumburðurinn rakleiðis á einn af leikskólunum hennar. Það eru forréttindi að búa í samfélagi þar sem maður hefur val en þarf ekki að borga aukalega fyrir það.
Strax á eftir þessari hugljómun kom önnur slík á Rúv en heimildaþáttur um samstarf Bítlanna við Cirque du Soleil snart mig óskaplega. Ég hef mikla unun af geisladiskinum "Love" sem er tiltölulega nýkominn út en að sjá þetta útfært svona var ótrúlegt. Litadýrðinni, loftfimleikunum og síðast en ekki síst nýútfærðri og hljóðblandaðri tónlistinni var einstaklega vel skeytt saman. Saga Bítlanna er ennfremur áhugaverð og er þetta svo sannarlega einstök hljómsveit í sögu tónlistar. Mögnuð frjósemi í lagasmíðum og sérstakt kemistrí. Ég stefni því rakleiðis á eina svona sýningu.
Nú fer senn að líða að Lundúnaför minni og ég hlakka mikið til að klára síðustu metra plötuferlisins. Haglélið dynur hér á eldhúsglugganum í maímánuði á Klakanum og það er lítið annað að gera en hugsa hlýtt til Englandsdrottningar.

V

0 ...og gammar geysa!:

Menningarhornið

  • Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
  • Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
  • Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
  • Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
  • Kommúnan, Vesturport *****