23.5.07

Hvert stefnir?

Ég hef ákveðið að blása til herferðar í stefnuljósanotkun Íslendinga. Hún er jú dræm. Magnað hvernig fólk svínir á mann hægri, vinstri... tja, eins og vindurinn bara. Allt án þess að gefa stefnuljós. Karlmaður einn um fertugt var svo huggulegur að brosa til mín blítt eftir að hafa keyrt þvert á ökuleið mína á Sæbrautinni. Hann sá mig greinilega ekki á akreininni við hliðina á og þegar ég skipti svo yfir til að horfa aðeins betur framan í sökudólginn, yppti hann öxlum og brosti bara með símann upp við eyrað og rúnnstykki í kjaftinum. "Nútíminn elskan, hvað ætlarðu að gera?" Ég ældi á hann í huganum. Fólk er svo upptekið af því að gera sem mest á einni mínútu að það endar e-s staðar í skurði teljandi bænirnar sínar. Vitundarvakningu í umferðina takk!

En yfir í léttari sálma þá stefnir allt í að júlímánuður verði afar tónelskur en fyrsta lag af plötu minni lítur þá dagsins ljós. Nú er hljóðblöndun lokið og held ég út fyrir landsteina bráðlega til að mastera og klappa afurðinni áður en hún fer að heiman. Ég vona að hún muni eiga erindi við sem flesta og eiga vísan stað í bílnum,á heimilum og öðrum stöðum þar sem fólk leitar náða. Þar sem mér ber skylda til að gefa stefnuljós í umferðinni, þá er jú gott að hafa einhverja allsherjar stefnu í lífinu og gefa hana til kynna við sjálfan sig reglulega. Ég er óralangt frá því að hafa praktíska stefnu en hingað til hefur stefnan verið á varðveislu hamingjunnar. Það ku vera ansi sárt að týna henni.



V

0 ...og gammar geysa!:

Menningarhornið

  • Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
  • Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
  • Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
  • Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
  • Kommúnan, Vesturport *****