29.5.07

Sveipar gulli dal og hól

Kuldalegasta fólk varð hlýlegt í dag en eins og Siggi Stormur spáði, þá fer Klakinn hlýnandi. Dagurinn hófst snemma og miklu hef ég áorkað. Toppaði svo góðan dag í Laugum. Ég fæ afar góðar hugmyndir á skíðatækinu með svitann lekandi niður ennið og brennandi heit lærin í púlinu. Ég virðist svo vera sú eina sem þraukar í gufunni í 7 mínútur eða meira. Þær koma allar og fara og ein ligg ég eftir í hvíldarunaði. Ég hlýt að vera eitthvað einkennileg.
Allt lítur út fyrir annasamt sumar og álíka annasamt haust. Yndislegt að sjá fram á næga vinnu og verkefni. Það skemmir heldur ekki fyrir lífsgleðinni hvað ég er yfirmáta skotin í unnusta mínum. Hann er svo klár og góður þessi elska! Það er aðeins mýta að fiðrildi í maga hverfi með árunum.

V

0 ...og gammar geysa!:

Menningarhornið

  • Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
  • Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
  • Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
  • Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
  • Kommúnan, Vesturport *****