4.6.07

og vér kvökum vort helgasta mál

Nú skyggir aftur á Klakann og regnið hlífir engum. Ég á það til að vera rómantíkus þegar kemur að veðri. Það má hreinlega dynja él á gluggunum og ég kalla það "bara kósý". Því má ímynda sér hvaða lýsingarorð ég á til fyrir sól og sælu. Ég er nefnilega ein af þessum. Þeim sem elska Íslandið sama hvað gengur á.
Ég hef hugsað mikið um þetta land, sögu þess og sjálfstæðisbaráttuna. Ég hef ætíð borið mikla svokallaða ættjarðarást til Íslands og tek þátt í þeirri huglægu útrás sem á sér stað hjá Íslendingum erlendis, þ.e.a.s. hjá þeim sem ekki eiga milljónirnar og fljúga einkaþotum um heiminn. Ég stæri mig af landi og þjóð, tala um fiskinn í sjónum, hreina vatnið, loftið og náttúruauðlindir okkar. Hvernig við nýtum vatnsaflið til rafmagns og hvernig við rísum upp í fjármálaheiminum sem Fönix úr öskunni. Ekki má svo gleyma því hvernig við hraðlesum Íslendingasögurnar eins og þær væru skrifaðar í gær.
Landinn skiptist nefnilega í tvær fylkingar; þá sem þola ekki þessa jákvæðni og hina sem gera ekkert annað en að ýkja ágæti Íslands við hvert tækifæri sem gefst. Ég get auðveldlega hlegið að því hvað við erum heittrúaðir Íslendingar en þegar ég rýni aðeins betur í staðreyndir þá er ekkert óeðlilegt við þennan rembing. Förum aðeins yfir ferilinn:
Mjög töff: Við erum komin af Víkingum.
Dáldið töff: Stofnun Alþingis 930. Ísland fullnumið. Þjóðveldisöld byrjar. Allir að blóta,dýrka guðina og almenn stemmning ríkir.
Lélegt: Gamli Sáttmáli 1264. Íslendingar tapa sjálfstæði sínu.
Mjög lélegt: Við vorum afdala aumingjar með hor í fleiri hundruð ár. Víkingatöffið rann af okkur eftir að menn hófu búskap hér. Skítkalt, erfitt að vera til og úrlausnir í matarmálum voru ansi púkalegar þótt sniðugar væru. Hver heilvita maður sér að súrir hrútspungar eru ekkert sérlega mikið delicatessen. Á sama tíma voru croissant uppskriftir að verða til e-s staðar í París.
Töff: Eftir endalausa baráttu fyrir sjálfstæði fáum við eigið þing og ríkisstjórn 1918.
Mjög töff: Ísland er sjálfstætt ríki 17.júní 1944.
Því má segja að þetta sé eins og hin besta skáldsaga þar sem aðalsöguhetjan, í þessu tilviki Ísland, berst fyrir tilvist sinni og sigrar að lokum. Við höfum alltaf átt náttúruauðlindir og jafnframt mannauðinn sem er jú forsenda góðs gengis. Af hverju ekki að bera þetta með stolti og efla fólkið í landinu til vitundarvakningar. Við skriðum frá engu yfir í að vera meðal fremstu þjóða á flestum sviðum. Lífsgæði, atorka og uppgangur. Ísland ER best í heimi. Það eru engar ýkjur.

V

2 ...og gammar geysa!:

Nafnlaus sagði...

Mikið var þetta skemmtileg færsla hjá þér stúlka góð! Kv. Sindri J.

Nafnlaus sagði...

Vá ég fyllist stolti :o).. við erum lang lang lang best í heimi !

Gangi þér vel með plötuna :)

Katrín Dögg

Menningarhornið

  • Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
  • Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
  • Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
  • Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
  • Kommúnan, Vesturport *****