dýrið gengur laust
.... jú Veddi er mættur í heimsveldið sem sólin mun aldregi setjast á. Merkilegt hvað ég hef saknað Lundúna mikið. Átta mig aldrei á því fyrr en ég er mætt á svæðið. Það þýðir kannski að maður sé ætíð sáttur sama hvar maður tyllir tánum. Fyrsti dagurinn í "masteringu" á nýju plötunni var í gær og ætti þetta að klárast fyrir helgi. Við sitjum þrjú, ég, Jamie Maher og Michael Fayne (alræmdur Fayney) og kinkum kolli við tölvuskjánum. Einstaka rassadillingar koma svo frá undirritaðri en ég sel það ekki dýrara. Ég mun svo sitja fund í dag með grafískum hönnuði að nafni Alessandra. Hún er ansi sniðug kvensan sú og verður gaman að sjá hvað hún getur gert með efnið sem Silja Magg tók heima á Íslandi.
Rúsínan í pylsuendanum þessa dagana er að Rakel mín er stödd í stórborginni ásamt unnusta sínum og höfum við mælt okkur mót í kvöld. Uppáhalds sushistaðurinn minn bíður þeirra og ætla ég að trútsa þau bak og fyrir á meðan ég sporðrenni hráum kvikindum niður útúrgaulaðan hálsinn. Þetta var viðurstyggileg setning en við látum hana sitja.
Hér á síðunni má finna lag vikunnar sem er þessa vikuna Heartbeats með The Knife en þetta er ótrúlegt lag! Ég lyfti lóðum eins og vindurinn þegar þetta er í eyrunum á mér og ég get ekki hamið mig um að lyfta upp höndum og syngja með.
London baby yeah!
V

3 ...og gammar geysa!:
Védís,þú ert ein af þeim sem reddar sér alltaf. Magnað að fylgjast með þér sumrið 2003 var það? en allavega þú ert mögnuð :)
Hæ sæta. Við söknum þín líka. Hvenær kemur þú heim? Gott að heyra að allt gengur vel. hafðu það gott. kv Sonja og strákarnir
Já, það var ekkert skemmtilegt í London.
Niiii...
"...I easily get confused..."
Rakka Rasta man!
Skrifa ummæli