Hvílast nú rósir er blómstruðu í gær
Ég kann vel að meta árstíðabreytingar. Haustið ber með sér dimmar stofur og kertaljós. Hlýlegar stundir með vinum og fjölskyldu og almenna tilhlökkun fyrir nýjum og spennandi hlutum. Mér líst vel á mannfræðina í Háskólanum, fyrstu tímarnir lofa góðu og ég sit eins og svampur í tímum og læri samviskusamlega heima. Get ekki alveg sagt að áhuginn fyrir náminu á menntaskólaárum hafi verið svipaður þessum en látum það vera. Merkilegt hvað maður hefur miklu meira þol fyrir fræðum sem með góðri samvisku maður velur sér sjálfur. Ég tölti yfir Reykjavíkurtjörn kampakát á leið í Háskólann. Tekur mig um tíu mín. og ég tek rigningarúðanum fagnandi á morgnana. Varla betri leið til að vakna en smá úði í smettið svo maður vakni almennilega. Nú höfum við skipt um hlutverk skötuhjúin og það er kallað á MIG í mat en ekki öfugt. Spúsinn farinn að gæla við eldamennskuna all hátíðlega og tilraunamennskan í fyrirrúmi. Ekkert nema gott um það að segja.
Svo er plötustússið allsráðandi í miðinu á þessu öllu saman og ég sé fyrir mér annasaman en góðan vetur. Þyrfti að fara að skella næsta lagi í spilun svo að fólk fái ekki æluna fyrir núverandi smelli, A Beautiful Life.
Bryndís mín sem gengst einnig undir nafninu Krulli, er nú á landinu í fríi og ég hef endurnærst af komu hennar. Það er ómetanlegt að eiga góða vini og hún er svo sannarlega ein af þeim. Hún kemur inn eins og stormsveipur og bros og blíða fylla hjarta mitt. Ég spurði hana hvort hún hafi komið til Íslands til að bjarga heiminum og hún jánkaði því. Hún bjargar allavega heiminum mínum þessa dagana og ég vissi ekki einu sinni að björgunar væri þörf. Svona kemur hún aftan að manni stelpan.
V

2 ...og gammar geysa!:
æææiiii þú. þú ert gull með fótleggi. you rock my world!
Ég vissi ekki að þú værir byrjuð í háskólanum :) en gaman :)
Ég get vel ímyndað mér að mannfræðin eigi vel við þig. Gangi þér æðislega vel ;o)
Kv. Guðrún Birna
Skrifa ummæli