einstök mamma

Bloggþögnin er hér með rofin í tilefni þess að móðir mín Bryndís Guðmundsdóttir, fékk Barnabókaverðlaunin 2007 fyrir frumsamda bók sína 'Einstök mamma', ásamt myndahöfundinum Margréti E. Laxness. Við fjölmenntum fjölskyldan og fylgdumst með múttukrúttinu taka við verðlaununum í dag, í Höfða, að viðstöddu fjölmenni, börnum sem höfðu unnið upplestrarkeppnir og fiðlusnillingum yngstu kynslóðarinnar.
Mamma er hetja í mínum augum. Hvort sem það er í hennar eiginlega móðurhlutverki eða úti á vinnumarkaðnum, þá er hún stórkostleg fyrimynd og ég elska hana mikið mikið.
Annars er ég að lesa fyrir vorprófin í HÍ og gengur það upp og niður. Ég er svo upp með mér vegna mömmu að ég hef lítið getað einbeitt mér í dag. Fór þó á fyrirlestur í morgun niðri í DeCode sem kennari okkar í líffræðilegri mannfræði mælti með. Það var ansi fróðlegt. Þar komu fram viðkunnanlegir fræðimenn og lýstu raðgreiningu sinni á erfðamengi neandertalsmanna (þeir draga erfðaefni úr steingervingum) og bera saman við okkar/nútímamanninn; þeir taka hreinlega í sundur litninga og eru með ógrynni gagnasafns til að styðjast við. Tilgangur rannsóknarinnar var ekki eingöngu að upplýsa um þróunarfræðilegan skyldleika manna og Neandertalsmanna, heldur líka að komast að því hvort erfðafræðilegur munur á þessum náskyldu tegundum geti varpað nýju ljósi á þróun þess líffæris sem gerir manninn svo einstakan, heilann.
Þetta gæti orðið ansi mögnuð uppgötvun hjá þeim, en skýrist á næstu mánuðum, jafnvel árum. Þar sem þetta er aðeins fyrsta önnin mín í líffræðilegri mannfræði þá viðurkenni ég fúslega fáfræði mína í þessum efnum, en það sem ég þó skildi, var dálítið magnað.
Að lokum vil ég benda velunnurum að kjósa góða tónlistarmenn á Vísir.is: www.visir.is - Hlustendaverðlaunin nálgast óðum - og ég var svo lánsöm að vera tilnefnd í tveimur flokkum. Ef ég er dugleg að lesa, þá ætla ég að skella mér á hátíðina 3. maí, án alls samviskubits. Það væri nú gaman að landa eins og einu kvikindi, það verður að segjast.
Ciao í bili.
V

3 ...og gammar geysa!:
til hammó með mömmu þína! vel að þessu komin þessi elska.
áfram védís!!!!
innilega til hamingju með mömmu sína:)
til hamingju með mömmu þína elskan!
Skrifa ummæli