Ómetanleg færsla frá Björk Guðmundsdóttur.
Blaðamenn lesi kreditlistann
Björk Guðmundóttir hefur birt nýja færslu á vefsíðu sinni, bjork.com, þar sem hún veitir tónlistarblaðamönnum tiltal fyrir ónákvæmar og rangar upplýsingar, sem þó liggja allar fyrir á kreditlistum. Segist hún hafa séð það síðustu sjö árin að Valgeiri Sigurðssyni séu eignaðir hlutir á plötunni Vespertine, sem séu ekki hans. Í framhaldinu veltir hún fyrir sér, hvernig á þessu geti staðið.
Björk segir meðal annars:
„Í síðasta tölublaði íslenska dagblaðsins Grapevine, sem er gefið út á ensku, er Valgeiri Sigurðssyni eignað að hafa skrifað út öll hljóðfærin á plötu minni Vespertine. Ég vil gjarnan koma með leiðréttingu:
Síðustu sjö árin hef ég tekið eftir því að hr. Sigurðssyni hefur iðulega verið eignað að hafa annaðhvort samið tónlistina eða stýrt upptökunum á þessari plötu. Ég vil benda á að hann gerði hvorugt. Hann var tölvuforritari við þriðjung upptakanna og tók upp þriðjunginn. Hinir þriðjungarnir voru í höndum annarra upptökumanna og forritara....“
Sexismi eða léleg vinnubrögð?
Björk segir fjórar mögulegar ástæður fyrir misskilningi blaðamanna:„1: Tónlistargagnrýnendur þessa heims hafa ekki alveg áttað sig á muninum á upptöku, forritun, því að semja og því að stjórna upptökum á elektrónískri tónlist. Sjónrænt virðist þetta allt svipað. Maður/kona situr við tölvu. Ekki eins mismunandi og til dæmis trommari, blásaraútsetjari eða upptökumaður. En þetta eru þrjú gjörólík störf, sem blaðamenn verða að fara að átta sig á.
2: Það gæti verið að þetta sé að einhverju leyti sexismi. M.I.A. lenti í þessu þegar talið var á hinum virta vefmiðli pitchfork.com, að Diplo hefði stýrt upptökunum á allri Kala-plötunni hennar, án þess að kreditlistinn væri einu sinni lesinn. Þannig hlaut það bara að vera, það gat ekki verið að M.I.A. hefði gert þetta sjálf! Það er eins og að ennþá, eftir öll þessi ár, geti fólk ekki ímyndað sér að kona geti samið, útsett eða stýrt upptökum á elektrónískri tónlist. Ég hef margoft lent í því að vinnan sem ég vinn í tölvum er eignuð hverjum þeim karlmanni sem var í 10 metra radíus á meðan á því stóð. Fólk virðist virða það að konur geti sungið og leikið á þau hljóðfæri sem þær sjást leika á. En þær geti ekki forritað, útsett, stýrt upptökum, editerað eða samið elektróníska tónlist.
3: Ég viðurkenni að eitt getur ruglað fólk í ríminu: Fólk verður að nota eyrun og í raun lesa kreditlistann til að fá þessar upplýsingar. Alla þá tónlist sem ég hef skapað: eins og til dæmis strengjaútsetningar, synta-bassalínur eða forritun elektrónískra mynstra, spila ég aldrei sjálf á tónleikum því ég vil gefa mig 100% prósent í sönginn. Ég bið því annaðhvort tölvurnar að leika þetta eða fæ aðra tónlistarmenn til starfans. Þetta gæti ruglað fólk.
4: Eitt sem gæti hafa haldið lífi í þessum misskilningi er að hvorki ég né Valgeir Sigurðsson höfum haft fyrir því að leiðrétta þetta.
En nú geri ég það.
Ég vona að þessi leiðrétting sé jákvætt innlegg í frekari umræðu um þetta.“
Björk skrifar undir bréfið, með hlýjum kveðjum. Í lok eftirskriftar bætir hún við: „Blaðamenn: vinsamlega lesið kreditlistann áður en þið skrifið.“ efi@mbl.is

0 ...og gammar geysa!:
Skrifa ummæli