-hér og nú - þar og þá!-
Jæja. Ég hef löngum haldið að síða þessi væri lesin af fjölskyldu og vinum til að fylgjast með afdrifum skvísunnar erlendis og hérlendis... en nú er svo komið að aukablað DV tekur upp á því að afla sér heimilda um mig út frá þessari síðu og skella því framan á forsíðu með fyrirsögnum sem sniðnar eru til að selja blaðið ásamt gamalli mynd sem tekin var í kringum útgáfu plötu minnar In the Caste fyrir fjórum árum síðan. Þetta finnst mér léleg fréttamennska sérstaklega í ljósi þess að heimildaöflunin ræðst á að mér finnst frelsi mitt til að blogga og gerir sér mat úr einhverju sem ég vil engan veginn að sé fréttamatur.
Á viðkvæmum tímum þegar hryðjuverk storma á Lundúnaborg og fólk er skelfingu lostið, sært og jafnvel látandi lífið þá virðist mér hálf kjánalegt að slúðurmennska sem slík haldi áfram óforskömmuð og full af eldmóði við að færa almúganum fréttir af fólki eins og mér sem er engu merkilegri en næsti maður!
Auðvitað er erfitt fyrir mig að verja einhvern málstað þessa bloggs þegar ég hef sjálf kosið að skrifa hér hægri/vinstri um afdrif mín á opinberan máta og því þykir mér miður að tilkynna velunnurum Veddarans að ég mun hætta að blogga að sinni og halda mínum einkamálum fyrir sjálfa mig og þá sem það kunna að meta og meðtaka sem einmitt einkamál.
V
7.7.05
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Menningarhornið
- Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
- Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
- Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
- Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
- Kommúnan, Vesturport *****

0 ...og gammar geysa!:
Skrifa ummæli