-ofskynjanir-
Eftir fáláta kaffiboð í hreiðrinu mínu góða fórum við systir mín og Ralph hennar heittelskaði í smá bíltúr um miðbæinn. Þar gat ég státað mig af ríkidæmi Reykvíkinga í Þingholtunum, talið upp Oz bræður sem hefðu eitt sinn keypt "þetta hús þarna" og að þessi og hinn væru gott sem búnir að sigra heiminn og það mætti nú sjá á þessum herragörðum sem standa óáreittir í sveimandi rómantík miðbæjarins, nálægt glitrandi tjörn og listaverka galleríum framtíðarinnar. Svo var auðvitað keyrt enn hægar framhjá norska, sænska og bandaríska sendiráðinu. Ralph, sem er Breti hafði þá á orði að nú væri eilítið furðulegt að vopnaðir lögreglumenn stæðu ekki fyrir framan bandaríska sendiráðið. "Yeah, well you know... Iceland is so safe... who would want to do anything to the embassy here?" segi ég svo og varla búin að kyngja þessum stóru orðum þegar ég minnist Erps nokkurs Eyvindarsonar er gerði einhvern óskunda þar. Ég lét það ósagt.
Þessi rólega og fallega bílferð var skreytt með ævintýrasögum af Ingólfi Arnarsyni, hetjudáðum okkar erlendis frá víkingatíð og svo nú í anda Baugsmanna, áfram gátum við varla talið og vorum eflaust æði stoltar af landi og þjóð í miðjum frásögnum um þetta mikla ágæti okkar Íslendinga. Svengdinni var bjargað með pylsum á Bæjarins Bestu þar sem okkar maður varð að fá sér tvær og lýsti hrifningu sinni af litlu búllunni við höfnina. Það var nú ekki til að lækka í okkur rostann og áfram komu sögurnar á meðan snjórinn tyllti sér á Esjuna og spegilsléttur sjórinn við Sæbrautina varð til þess að þjóðarstoltið fór hamförum.
Bílferðin góða endaði svo á Höfða en þar áttum við til sögur af draugagangi og stjórnmála partíum þar sem pabbi hafði óvart fengið áfengi í glasið sitt! Aaaha ha ha ha! Hugsa sér!!!
Ég var líkast til orðin rauð í framan af hrokarembingi og "Ísland! Best í heimi" auglýsingin var allt í einu ekki svo langsótt í eyrum mér. Í þessari ferð hafði ég talið sjálfri mér trú um það að ekkert illt væri að finna á litla Klakanum. Né nokkuð til sem þyrfti í rauninni að setja mikið út á.
Bíllin staðnæmdist við Höfða þar sem Lalli Johns og nýja kærastan voru að tína nýútsprungna ofskynjunarsveppi.
"Ehh... Ralph, take the next right..!"
V
15.9.05
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Menningarhornið
- Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
- Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
- Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
- Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
- Kommúnan, Vesturport *****

0 ...og gammar geysa!:
Skrifa ummæli