15.6.07

Áfangi í Lundúnum

Í dag er síðasti dagur í "masteringu". Ég hef aldrei náð tökum á íslenskri þýðingu þessa orðs en þetta er sumsé lokaferlið eftir að búið er að hljóðblanda lögin. Það má segja að þetta sé eins konar innpökkun á efninu, allt er húðað örlítið svo að það hljómi vel í öllum græjum, heimili,tölvu,bílum og síðast en ekki síst útvarpi. Ég er miklu betri í upptökunum sjálfum ásamt hljóðblöndun svo að ég læri heilmikið af því að fylgjast með Fayney "mastera" og stýra honum mjúkri hendi.
Ég segi það eins auðmjúklega og ég get að ég er mjög ánægð með tímann sem farið hefur í að fínpússa,laga,breyta og bæta plötuna mína. Ferlið byrjaði formlega síðasta sumar og síðan þá hafa ný lög orðið til ofan á gömul og árangurinn lætur ekki á sér standa. Ég hef átt þónokkur samtöl við upptökumenn heima á Íslandi sem vildu óska þess að meiri tími færi í upptökurnar. Ég bendi þeim iðulega á að færnin og afkastagetan eykst þegar maður hefur skemmri tíma og því getur það verið bæði gott og slæmt í senn. Það er einnig eðlilegt að upptökumenn sem hafa reynsluna séu þeir sem færa gæðin inn í pakkann. Þeir eru sneggri og úrræðabetri. Það er því nokkuð ljóst að ég á langt í land í þeim geiranum og því er ég afar lánsöm með Jamie og Fayney sem hafa unnið þetta með mér. Ég hef þó röddina fyrir gólið, píanóið og lagasmíðarnar til að ylja mér um sinn.
Ég ætla að skoppa út í lestina og klára síðasta daginn með stæl. Við ætlum svo að fagna þessu örlítið með West Hampstead vinum okkar á morgun. Það eru allir að spyrja mig hvort ég sé ekki ánægð með þetta, stolt og svona en ég er bara hálf bangin við að leyfa mér nokkuð af því. Grafíski hönnuðurinn sem ég er að vinna með fyrir vefsíðuna og slíkt sló mig létt í framan í gær og hló að mér; "are you used to putting yourself down like that?". Já, ég hef heyrt þetta áður. En hver vill stórhöfða, ofmetna tónlistarmenn nú til dags? Þetta höfðar ekkert til allra og ég veit það. Ég veit bara að þeir sem fíla þetta eru velkomnir í heim Veddarans.

V

1 ...og gammar geysa!:

Nafnlaus sagði...

Hey, hvað er friggin flaming málið? Ég skrifaði voða flott ljóð hér og post-aði það en ekkert birtist! For fanden man!

Heyrðu, jómi! Ég þarf að fara að trútsa þig útaf af ó svo mörgu! Næsta vika í trúts.
Bæ.

rassi

Menningarhornið

  • Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
  • Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
  • Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
  • Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
  • Kommúnan, Vesturport *****