Moggablogg
Ég lenti seint í gærkveldi á Keflavíkurflugvelli. Það var fremur heiðskírt og afar bjart yfir öllu enda sumar á Klakanum. Ég fyllist alltaf miklu stolti þegar útlendingar "úúaa" og "vááa" við hlið mér í lendingu. Í þetta skiptið varð ég sjálf furðu lostin yfir fegurðinni. Ég hafði t.d. aldrei tekið eftir því hvernig lúpínur umvefja flugbrautina og í mistrinu sem lá yfir jörðinni var þetta hreinlega eins og að lenda í ævintýralandi. Dásamlegt. Gott að vera komin heim.
Ég varð hvumsa við að lesa merkilega frétt á mbl núna en vísindamenn hafa fundið mannabein sem þeir telja vera af einu fyrsta fórnarlambi skotvopna í Vesturheimi. Nú eru hinir ýmsu skráðir með "moggablogg" og við hlið greinarinnar sá ég fyrirsögnina "who gives a dam?". Fyrir það fyrsta þá hló ég að "ritvillunni" í fyrirsögninni hjá viðkomandi og hugsaði með mér að fólk gæti nú alveg gefið stíflu eða uppistöðulón ef það vildi. Ég smellti á fyrirsögnina og sé þar að hress fimmtug kona kærði sig kollótta um vinnu fornleifafræðinga og segir hún orðrétt: "sorry orðbragðið, en mér gæti bara ekki verið meira sama. Hann dó hvernig sem það bar að, geta þessir blessuðu vísindamenn ekki einbeitt sér að því að lækna veikt fólk í nútímanum, eða finna upp eitthvað sem kemur sér vel fyrir þá sem þjást af matarskorti ofl. Sorry er bara ekki að skilja svona vinnu".
Lýðræðið er kómískt á stundum þegar allir geta gefið umsagnir um fréttapistla á einum virtasta miðli landsins. Ég saup kveljur! Ég er viss um að daman meinar vel og hafði ekki hugsað setninguna til enda þegar hún skrifaði hana í tja.. svefngalsa.
Ég gef henni hér með skotleyfi á mig í staðinn ef svo vildi til að hún læsi þessa athugasemd mína:
Þessir "blessuðu vísindamenn" hafa setið sveittir við nám og rannsóknarvinnu til þess að fólk gæti lifað tiltölulega eðlilegu lífi. Fornleifafræðingar hafa grafið upp merkilega sögu alls mannkyns og læknavísindi eru m.a. byggð á slíkum greftri. Ef það væri ekki fyrir þessa blessuðu vísindamenn þá væri lífið aðeins meira erfiði og við hefðum engan skilning á uppruna okkar og tryðum því enn að jörðin væri flöt. Lífið allt rennur undan rifjum þekkingar og ef þetta er ekki mekka þekkingarinnar þá skal ég hundur heita og allir geta gefið "stíflu" í allt.
V

2 ...og gammar geysa!:
Heyr Heyr Veddi...
Velkomin heim kella... nærveru þinnar hefur verið beðið með óþreyju hér á þessu fagra landi. Fólk spyr og spyr um leynidagskrá á sparidegi Vedda og Þolla... á ekkert að fara að gefa neitt upp??
Heimta nú kaffi og Veddaglens sem fyrst...
veddi vei vei vei! eg er ekki ad koma i surprise visit. so sorry.. en heldurdu ekki áfram ad elska mig samt? jú ok takk. thú ert svo lekker lúpínan mín!
Skrifa ummæli