Gæs
Ég gæsaði elskulega vinkonu mína um helgina síðustu ásamt æstum hópi stúlkna og tókst þetta svakalega vel upp. Við byrjuðum allar snemma að leggja á ráðin og kukla yfir seiðandi pottum vegna þessa. Hvet ég alla sem í vandræðum eru með slíka fögnuði að hafa samband við Veddarann og Hildi Sveins en við grínuðumst með að stofna fyrirtæki saman og sjá um gæsanir og aðra fögnuði sem þurfa spark í bossann.
Ég er svo ánægð með þennan dag að ég verð hreinlega að rekja þetta hér þó svo að þetta eigi kannski einungis erindi við þær sem voru á staðnum. Sjáum hvort hinir hafi gaman af!
* Gæsin vakin upp við fuglasöng og keyrð á heimili Veddarans þar sem hennar beið níðþröngur íslenskur landsliðs glímubúningur með glímubelti í stíl. Gæsin var svo látin taka lagið í hljóðveri Veddarans og söng þar inn á lagið Ástardúett með Stuðmönnum. Vinahópurinn hafði jú sungið inn bakraddir áður og var mikið sprellað yfir þessu. Upptakan verður svo geymd fyrir frekari niðurlægingu brúðarinnar en um það verður ekki fjallað frekar hér.
* Við snæddum "brunch" og sprelluðum úti í garði þar sem gæsin svaraði afar erfiðum spurningum frá tilvonandi eiginmanni sínum.
* Bílalest yngismeyja vakti svo athygli á Hellisheiðinni en við skunduðum með gæsina í skotfimi á Eyrarbakka. Við fengum allar að spreyta okkur við að skjóta leirdúfur, þ.á.m. tilvonandi tengdó og móðir gæsarinnar en þær voru að sjálfsögðu að með í fjörinu. Gæsin var uppdúðuð í skotklæðnað og vart sást í andlit hennar.
* Að því loknu snæddum við sjávarréttasúpu á Rauða Húsinu á Eyrarbakka.
* Stund milli stríða var tekin við Hafið Bláa þar sem svört strönd prýðir sjávarbakkann. Sólin skein sem skærast og hiti fór hátt yfir 20 gráður. Teppi voru lögð á sandinn og allir undu sér vel með svaladrykki og góðan félagsskap.
* Gæsin var ekki lengi í paradís og þurfti að leysa húsmæðraþrautir eins og krossasaum o.fl.. Síðan voru tengdó, móðirin og gæsin látnar keppa í froskalappahlaupi í sandinum. Þetta var afkáralega kjánalegt og ég felldi tár í takt við hláturkippi líkamans.
* Við settum saman vísur, sungum og spiluðum á gítar í sólinni.
* Næst var ferðinni heitið á bóndabæinn Stekkar þar sem gæsin var látin þrífa júgur og mjólka. Einnig sá hún aumur á munaðarlausu lambi og gaf því mjólk að drekka úr pela þessi elska. Enn var hún í glímugallanum góða með glímubeltið á sér.
* Tengdó og móðirin kvöddu eftir það og yngismeyjarnar héldu leið sinni áfram í fjölskyldubústað einnar vinkonunnar í Neðri Dal. Þar var allt tilbúið frá því kvöldinu áður, lagt á borð og kjúllinn beið í sinni marineringu ásamt tilheyrandi dúlluskreytingum er sæma slíku föruneyti.
* Þá hófust leikar. Skipt upp í hópa og keppnisskapið leyndi sér ekki. Gæsin var látin greina súkkulaði sem brætt hafði verið í fjórar bleyjur. Að því loknu fórum við í þrístökk, spjótkast með bundið fyrir augun og "hver kemur flestum vínberjum upp í munninn" keppni.
* Máltíðin var svo unaðsleg og félagsskapurinn óviðjafnanlegur.
* Myndasýning á dvd diski með tilheyrandi tónlist fór fram þar sem ferill gæsinnar var rakinn.
* Við skelltum okkur svo í bikiníin og bleyttum sólbrennda bossana í heitri laug sem þar var að finna í bakgarðinum.
* Gæsin var formlega kvödd við hátíðlega athöfn, skrautpinnar voru notaðir til að "signa" hana að hætti drottningarinnar og hún fékk kórónu á höfuð sitt ásamt skókassa sem hún hafði sjálf skreytt um daginn og í voru persónulegar kveðjur frá hverri og einni okkar.
Rakel Sif mín og allir hinir vitleysingarnir! Takk fyrir daginn :)
V

3 ...og gammar geysa!:
Vá hvað þetta hefur verið skemmtilegur dagur og súkkulaði í bleyju og mömmur í froskahlaupi hljómar mjög svo fyndið.
knúsí smúsí á þig stelpa
hahahhaha thid erud nú meiri snillingarnir. takk fyrir símhringuna um daginn ástin mín. thad kom upp á smá ferdalag til Cataluníu á morgun og kem til madridar á mid.kvold. Jújú einmitt nýkomin frá Tenerife. Sagirdu ekki ad mér aetti ad láta mér lída vel...... xoxoxoxoxoxoxoxoxo
Takk fyrir daginn sömuleiðis:) ættum kannski bara að stilla upp business plani..held etta sé nettör bransi:) ætla svo að fara að panta lag á öllum útvarpsstöðvum bæjarins...!! til lykke med det hele!
stórt knús skat!
Hildur
Skrifa ummæli