25 ára kvikindi!
Kæru vinir, takk fyrir allar kveðjurnar í dag! Ég elska að fagna afmælum með öðrum og er ekki síður kát með að vera afmælisbarnið sjálf. Maður heyrir nefnilega í fólki sem maður heyrir of sjaldan í!
Ég var vakin við bakarífyllt eldhúsborð, kertaljós og rósabúnt af mínum heittelskaða. Svo hef ég ekki við að taka á móti textaskilaboðum,símtölum og vinalegheitum. Mér þykir svo vænt um þetta.
Spúsinn tók mig í sögulega ferð um Grindavík og stoppuðum við m.a. á Saltfisksetrinu og skoðuðum sýninguna þar sem er mjög myndarleg og fróðleg. Við kíktum á forfeðurna í Grindavíkurkirkjugarði. Ég færist greinilega nær og nær því að líkjast afa mínum Guðmundi Knúti Egilssyni en hann tekur myndir af leiðum og hefur mikinn áhuga á legstað hinna ýmsu manna. Ég tók myndir af leiðunum og einnig myndband og talaði ofan í þetta eins og fagmanneskja. Nú þykir sumum slíkt ekki beint huggulegt áhugamál en það er viss rómantík í því að hugsa vel um leiði ástvina. Ég er viss um að það hafi góð áhrif á sálina. Svo erum við komin í Goðastein þar sem fjölskyldan beið með hlýjan faðminn.
25 ára og sátt með 'etta. Líður vel í eigin skinni og hef áorkað flestu sem ég ætlaði mér þegar ég lagði á ráðin 7 ára gömul. Hvað á maður nú að taka sér fyrir hendur?
Risaknús og megatakk til allra!
V

1 ...og gammar geysa!:
Til hamingju með daginn þinn :)..
Kveðja,
Katrín
Skrifa ummæli