13.7.07

þrjátíu stykki

Spúsinn varð þrítugur í dag og við hér á Veddaranum óskum honum innilega til hamingju með daginn. Ferill hans er langur og glæsilegur í músík og lögfræði. Hjartað er heilt og stórt og viljinn góður. Ánægð með karlinn og höfum við átt dýrindis dag í sumarblíðunni á Klakanum. Við gengum á Úlfarsfell og snæddum hádegisverð á teppi í hlíðinni. Hann fékk silfraða og fágaða munnhörpu í afmælisgjöf og var ansi lukkulegur með það. Við gleymdum okkur svo aðeins í sólinni í Laugum og yljum okkur nú við brennandi kinnar hvors annars. Litum í spegil áðan og ég var allt í einu stödd í nýjasta þættinum með Gau og Gokke.
Vorum svo rétt í þessu að koma af tónleikum Regínu Óskar, Margrétar Eir, Heiðu Ólafs og Heru Bjarkar en þær kalla sig ýmist Lufsurnar eða Rotturnar. Ég elska þær! Mæli með þessum dömum! Þær eru hreint út sagt ótrúlegar saman. Þetta er ferskt og gott hugtak þessa dagana og veitir ekki af slíku hér á landi. Ofurraddaður kvenmannssöngur framkallar gæsahúð og þær tóku m.a.s. uppáhalds lagið mitt, More than a feeling. Þá tóku þær afmælissönginn fyrir Þollann minn í afar æsandi útgáfu og minn seig bara neðar og neðar í sætið og sólbrenndar kinnarnar roðnuðu í miðju margmenninu. Hann sá þetta ekki koma eins og maður segir á góðri íslensku.

Þolli, þú ert bara svo mikið hott stöff. Kældu þig niður félagi!



Til hamingju beibster minn.

V

2 ...og gammar geysa!:

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með manninn og takk fyrir okkur á laugardaginn. Þetta var ótrúlega nýstárleg og skemmtileg veisla. Þið eruð frábær :) HG og BB

Nafnlaus sagði...

til hamingju þið!! takk fyrir síðast, gaman að vera með ykkur í sveitinni:-) mig langar í út að leika, í kubb badmiton ofl.
knús

Menningarhornið

  • Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
  • Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
  • Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
  • Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
  • Kommúnan, Vesturport *****