24.7.07

Glensi glensi



Við skötuhjúin buðum í stórveislu 14.júlí síðastliðinn þar sem Þollinn fagnaði árunum 30 og ég mínum 25. Það eru fjórir dagar á milli afmæla okkar og því sé ég fram á að talið verði í herlegheit á fimm ára fresti. Þetta er afar hagkvæmt því með þessu þarf ekki að gifta sig né halda afmælisveislur í sitthvoru laginu. Því má segja að sparnaður lífs míns hafi orðið þegar Þollinn gekk inn í líf mitt.
85 manns mættu í gleðina sem fór fram á Skógarhólum á Þingvöllum. Hoppikastali var á staðnum fyrir börnin, nóg af gómsætum mat og brekkusöngur var svo einn af hápunktum kvöldsins þar sem gítarspil ómaði í takt við neistann úr bálinu góða. Sólin skein, hitinn slagaði upp í 23 gráður og almenn gleði var við völd.
Ég vil þakka fjölskyldu og vinum fyrir frábæra mætingu, einstakt lundarfar og því góða fólki sem ákvað að gista í tjöldum með börn og buru. Þetta var eðalskemmtun!

Svo virðist ástin ætíð vera allsráðandi en systir mín kær og hennar heittelskaði ökuþór, Ralph Firman, trúlofuðu sig í Bjarnarey þegar þau voru stödd hér landi fyrir skömmu. Hrólfur (eins og hann er kallaður innan fjölskyldunnar) skellti sér á skeljarnar við lundakvak og bleikan himinn. Strákurinn hafði tekið sér gott ár í að plana þetta, spurði pabba leyfis og var árangurinn eftir því. Ég var spennt að heyra hjá pabba hvernig hann svaraði eiginlega svona bón um hönd dóttur sinnar; "Ég sagð'onum bara að þetta væri milli þeirra, ekki okkar..." svo bætti hann við glottandi "en ég gaf honum samt leyfi."
Aðaldísin jánkaði þessu kát og því er brúðkaup á næstunni hjá Sigfússon fjölskyldunni. Við mæðgurnar ætlum að skella okkur til Boston um jólin og skoða kjóla. Þá get ég bætt kremum við safnið hjá mér ef ég er dugleg að selja plötuna mína!

Mér var að berast kjötsúpa á borðið sem spúsi minn eldaði. Hann er allur að færa sig upp á skaftið í eldhúsinu, þessi elska.
Skál fyrir því!

V

1 ...og gammar geysa!:

Nafnlaus sagði...

jaeja núna er thessi mynd komin á desktopin í vinnunni og ég kyssi ykkur baedi reglulega (gódkynja gedsýki). Djöfull skal ég trútsa ykkur!

Menningarhornið

  • Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
  • Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
  • Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
  • Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
  • Kommúnan, Vesturport *****