26.7.07

*Bryllup!!!* - við erum fullorðins....



Ástkær vinkona mín Rakel Sif mun ganga í það heilaga á morgun. Ég á enn bágt með að meðtaka þessa staðreynd en gifting er jú eitt af því sem maður sá fyrir sér þegar maður væri orðinn stór. Ég tel okkur ennþá vera sextán með hliðartagl syngjandi saman "girls just wanna have fun" í Thriller söngleiknum. S.s. litlar og vitlausar.
Það er vissulega bót í máli að maðurinn sem hún gengur að eiga er afar fýsilegur í alla staði og lukkan því yfir og allt um kring.
Rokkarinn eins og hún er jafnan kölluð, er mikill kvenkostur, gamansöm, fögur og góð vinkona; einstaklega góð vinkona.
Því segjum við hér á Veddaranum; farvel og pa gensyn mín kæra! Ég verð þarna einhvers staðar á hliðarlínunni og styð þig áfram. Þetta getur nú ekki verið erfitt. Eitt skitið "já". Svo mun ég gaula þarna ofan í mannskapinn í athöfninni og passa það grimmt að tárast ekki svo að orðin skili sér. Þollinn minn spilar inn og út brúðarmarsinn á orgelið góða og svo teljum við í rómantík fyrir krakkana með hörpuleikara og alles! Ji, hvað ég hlakka til. Þetta verður án efa meyrasta brúðkaupið að syngja í, hingað til.

V

3 ...og gammar geysa!:

Nafnlaus sagði...

faaalleg!!!!! skemmtid ykkur heeps mikid! vildi óska ad ég vaeri hjá ykkur!

Nafnlaus sagði...

fyrirfram hamingjuóskir með fallegan dag, knús á brúðhjónin frá álfheimafjölskyldu og toi toi fyrir veddarann í sönginn

Nafnlaus sagði...

Halló halló spermína, ég er á landinu en gengur eitthvað illa að ná í þig. Síminn minn er: 6152535

Og vááá, er Rakel að ganga í það allraheilagasta skilaðu ástar og saknaðar kveðjum frá mér!

Menningarhornið

  • Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
  • Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
  • Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
  • Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
  • Kommúnan, Vesturport *****