30.7.07

óður til pabba



Þessi lífsglaði....



handlagni og hjálpsami...



umhyggjusami.....



ástfangni....




sprellari.....

er pabbi minn.

Gæjinn sem “flytur fjöll” þarna á Suðurnesjum er ekki aðeins bæjarstjóri heldur heimsins besti pabbi og eiginmaður. Fagnar sá 51 árs afmæli sínu í dag. Pabbi á fjögur "uppkomin" börn með ofurskvísunni Bryndísi Guðmunds (Bissí Gumm); Aldísi Kristínu, Védísi Hervöru, Guðmund Egil og Sigfús Jóhann. Hefur þeim tekist vel upp, skötuhjúunum og væri ég glöð að fylgja þeim eftir í þessum efnum einhvern daginn.
Pabbi gaf mér lífið, lundarfar og áræðni. Skynsemi, þor og glæsilegan nebba.
Pabbi er alltaf til staðar. Símleiðis, rakleiðis, faðmleiðis og netleiðis.
Ég er húð hans og hár. Ber það ætíð með stolti.
Hann er sterkur og stór, miklu sterkari en pabbi hennar Sollu í næstu blokk!
Pabbi, ég elska þig! - til hamingju!

V

3 ...og gammar geysa!:

Nafnlaus sagði...

til hamingju med pabba thinn vedds!!! á íslandi býst ég vid heimbodi thar sem mér verdur kynnt fyrir nýjum húsakynnum og leyft ad njóta hins gamla álftamýrar-anda sem lidid dregur med sér hvert sem thad fer!
ást til thín frá mér.
xxx

Nafnlaus sagði...

Hola chica!!

Bara að kasta kveðju á þig héðan frá Argentínu. Hamingjuóskir með pabbann, spúsann þinn og sjálfan þig á síðast liðnum vikum!! :D

Besos de Argentina...

Nafnlaus sagði...

Sæl Védís, gott blogg. Falleg færsla um föður þinn. Greinilega góð gen í ættinni því vinur minn vinnur hjá Sjóvá og hrósar föðurbróður þínum látlaust í mín eyru. Hann kemst ekki yfir það hvað hann sé frábær.

Gangi þér vel í leik og starfi.

kv. Tobbi (Verzló)

Menningarhornið

  • Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
  • Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
  • Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
  • Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
  • Kommúnan, Vesturport *****