7.8.07

Eyjar Vestmanna

Jæja, þá er komið að útlistun á helginni góðu. Við Þollinn skriðum inn í gærkvöldi eftir að hafa deilt litlum rýmum í Herjólfi með vel hífuðu liði og myglaðri andremmu fólks sem hafði tekið helgina með trompi. Gott að koma heim í hreint og fallegt kotið og undir sængina góðu.
Ferðin var hin skemmtilegasta, með nærri öllum fjölskyldumeðlimum pabba megin og við gistum í húsinu okkar í hlýju og vellystingum. Veðrið rættist heldur betur á annan veg en spár sögðu til um og aðfaranótt föstudags var sú eina sem var vafasöm í vindátt og snúningum. Ég kann vel að meta Sigga Storm en ég er hætt að hlusta á þessar veðurspár viku fram í tímann. Það er ekkert að marka þessi grey.

Í Eyjum var dansað,hlegið,sungið og slegið á létta strengi eins og jafnan er gert í fjölskylduboðum. Hátíðin öll var til fyrirmyndar fyrir utan tilheyrandi glerbrot og slabb á svæðinu en það var auðvelt að horfa framhjá því þegar stirndi yfir Herjólfsdal flugeldum og almenn vinátta var við völd.

Ég gerðist svo merkileg að skella höfði undir armakrika Toby nokkurs er var í Rock Star keppninni frægu en Dóri hennar Hildar, var svo elskulegur að ná í karlinn inn í tjald þegar hann frétti að Toby væri "uppáhalds". Þolli var hins vegar fljótur að hverfa þegar Toby mætti á svæðið og ætlaði mér greinilega einni að verða fyrir þessari dýrðarreynslu. Ég er lítið fyrir þá sem teljast vera "frægir" eða er svosum ekki að festa klærnar í þá eins og mörg íslensk stúlkan þarna á svæðinu... og hristi ég hausinn yfir stúlkum þeim er sögðu "Toby, I think you´re great. I want to have your baby." Þetta var ÁN GRÍNS setningin sem flaug fyrir vitum mér þarna úr munni tveggja barna móður. Hún hefur örugglega bara meint vel, þessi elska.
Hins vegar þegar ég virði fyrir mér myndina sem Dóri tók af mér og kappanum og sendi mér núna rétt áðan, þá glittir í rjóðar eplakinnar og álfasvip á stelpunni. Er maður eitthvað að fara hjá sér?



Veddi grúppía. Þetta er agalegt.

V

2 ...og gammar geysa!:

Nafnlaus sagði...

heheh veit náttla ekkert hver thetta er thar sem ad ég er útlendis en mér finnst thú aedi. fögnudur hefst 30.ágúst takk fyrir hjjjjéééééér.

Nafnlaus sagði...

ooohh ég hugsaði alveg til eyja á sunnudagskvöldið, brekkusöngur, stemningin,flugeldarnir & blysin. bara gaman, annars finnst mér þú flott með topy, hann rokkar ;)og þú ert örugglega mikið öfunduð af öllum mömmunum í eyjum hahaha...

knús til þín sæta mín

Menningarhornið

  • Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
  • Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
  • Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
  • Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
  • Kommúnan, Vesturport *****