með Belgum skemmt'ég mér tralalala
Jæja krakkar! Er ekki lífið yndislegt? Enn eru veðurspár ómarktækar og sólin skín mér til mikillar gleði. Spúsinn kominn í frí frá og með deginum í dag og hér eru tveir Belgar í heimsókn hjá okkur. Annar þeirra,Stefaan, er góðvinur okkar og deildi íbúð með Þollanum í Belgíu hér i den. Kom hann svo stuttu síðar til Íslands og tók eitt ár í lögfræði hér og talar nú íslensku af mikilli list. Aðra sögu er svo að segja um flæmskukunnáttu Þollans en hann ber því fyrir sig að hafa verið önnum kafinn við lestur enskra námsbóka. Stefaan greip vin sinn með sér, þessi elska og nú liggur leið okkar allra á Vestfirðina, í enn meiri veðurblíðu. Tjaldið er fokhelt og skórnir gegnheilir svo að það er ekki eftir neinu að bíða. Ship o hoj.
Músíkmál ganga með mestu ágætum og sýnist mér "A Beautiful Life" vera að skríða upp í spilun hjá Bylgjunni og Rás2. Það er á topp tíu hjá Létt Bylgjunni. Gaman að fólk taki vel í þetta. Svo verð ég með 5-6 laga sett á Airwaves í október. Það verður fyrsta skipti mitt á Airwaves undir eigin nafni. Áður hef ég sungið með Bang Gang ein þrjú skipti. Ætti að vera spennandi.
Styttist í komu Krullans míns frá Spáni og þá ætti maður að svala ýmsum þorsta er hrjáð mann hefur upp á síðkastið. Rakelin er nýskriðin úr brúðkaupsferð sinni eftir framúrskarandi brúðkaupsveislu. Ég hef greinilega náð stjórn á tilfinningaseminni því mér tekst að halda aftur af tárunum inn á milli laga. Ekki er ég skárri þegar ég syng fyrir ókunnuga í kirkjum en mér þykir þetta alltaf jafn falleg heit milli tveggja einstaklinga.
Allt fyrir ástina eins og Páll Óskar okkar syngur svo fagurt. Sammála!
V

2 ...og gammar geysa!:
ástin mín til hamingju med allt! thó sérstaklega sólina. dásamlegt ad thú skulir skella thér á Airwaves. thú rokkar thetta trútsi.
annars thá sé thig eftir 16 daga og verdur farid í gegnum öll mál. ef thú átt bryllupsmynd af Rocky thá vaeri hún vel thegin. ég er skilin eftir í óvissunni...
loving!
Ég elska menn... Hallelúja, ég elska menn... Amen!
Thó sérstaklega einn mann. En ég elska thig líka, thví thú ert líka madur. Mannvera. Homo sapiens gæi. Ég er med svefngalsa...
Ok, ég er komin heim úr brúdkaupsferd... Yndislegur tími. Nammi namm. Ég á delicious EIGINMANN. Alveg sko suddalega.
Ekki margt ad gerast í thessari viku thar sem ég er bara ad dóla mér, ásamt ødru, í Kaupmannahøfn og ætla ad senda thér skemmtilegan póst á føstudaginn. Híhí.
Hringdu í mig, Snati!
Rakelin
p.s. Thad er tøff ad vera giftur. TØFF!
Skrifa ummæli