17.9.07

ég er önd

Nú er álagstími að rísa hjá mér og þeir sem mig þekkja vel geta staðfest að stress er eitthvað sem ég ber ekki endilega með mér. Hins vegar er eitt sem kemur upp um mig og það er minn sítitrandi fótur. Ég þarf að vera meðvituð um þetta og stjórna óviðráðanlegri löppinni með fallegum hugsunum. Stundum gleymi ég mér og spúsinn slær mig í fótinn fyrir að skelfa allt heimilið. Ég segist vera eins og önd; "calm on the surface... puddling underneath..." Ég syndi róleg áfram með stíft pókerfésið á meðan að fóturinn er stífur af stresskrampa.
Ég er bjartsýn á haustið þrátt fyrir umrædd fótavandræði. Ég ætla að taka þetta á skipulagningunni. Klára fyrstu önnina í mannfræði með góðri samvisku og spila góð "gigg" meðfram því. Samnemendur mínir ásamt kennurum eru mjög frambærilegir og vinalegir og ætti það að auðvelda mér haustið.

Obbobbob... nú heldur fótakvikindið áfram - þetta er alltaf vinstri fóturinn. Hefur það einhverja merkingu? Ég vakna á næturna við víbrandi fót minn og ekki lítur það vel út gagnvart spúsa mínum sem misskilur titringinn fyrir einhverja allt aðra stemmningu.


V

2 ...og gammar geysa!:

Nafnlaus sagði...

heheh kannast við titringinn þinn:) ég hér með rukka þig um kvöldkaffi

Nafnlaus sagði...

Haha þú ert yndi og ég geri kröfu um að fá að vera með í þessu kvöldkaffi!!

Menningarhornið

  • Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
  • Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
  • Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
  • Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
  • Kommúnan, Vesturport *****