26.9.07

Lýðræði

"Sautján Búddamunkar slösuðust er öryggissveitir herstjórnarinnar í Myanmar dreifðu hópi mótmælenda með valdi. AFP fréttastofan hefur eftir sjónarvottum að munkarnir hefðu slasast er lögreglan réðist á mótmælendur með kylfum í grennd við Shwedagon Pagóðuna í Yangon. Ritzau fréttastofan segir að einn munkur hafi látið lífið en það er óstaðfest.

Meðal hinna slösuðu er áttræður Búddamunkur sem að sögn var barinn í höfuðið af lögreglu. Munkurinn mun hafa tekið þátt í hinum daglegu mótmælum þrátt fyrir að eiga erfitt með gang" -Tekið af mbl.is.

Ég mun aldrei hætta að segja það en ofbeldi er sísta leiðin til að ná sínu fram, og engin leið í rauninni. Friðsamleg mótmæli munka fá svona viðbrögð og maður spyr sig hvar í ósköpunum er kærleikurinn? Friðsamleg mótmæli hafa sögulega náð meiri árangri til móts við blóðsúthellingar þar sem fólk vill byltingu, breytingar, hefnd og olíu jafnvel eins og í Írakstríðinu. Martin Lúther King, Ghandi o.fl. voru friðsamlegir mótmælendur. Litlir gúmmíhermenn og leikfangabyssur í höndum ungra drengja og stúlkna gætu talist indæl afþreying fyrir þau en í rauninni er verið að skaða undirmeðvitund þeirra og segja þeim að þetta sé náttúrulegur hluti af lífinu. Eins og það kosti alltaf blóðsúthellingar til þess að ná fram réttlæti. Hvar er réttlætið í því?

V

0 ...og gammar geysa!:

Menningarhornið

  • Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
  • Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
  • Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
  • Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
  • Kommúnan, Vesturport *****