1.10.07

alvara lífsins - lífsins blóð

Þetta segir móðir mín iðulega í eldhúsinu, á skrifstofunni, í bílnum, í kaffiboði... áfram get ég talið. Þetta eru hennar einkunnarorð. Móðir mín er hetja. Hún er dugnaðarforkur, sívinnandi, pælandi og reddandi hinum ýmsu málum. Ég var kærulaust krakkaræksni og fór í sund án sundfatanna, skellti kökum í ofninn án þess að fylgjast með tímanum, gleymdi húfum og vettlingum út um allan skóla og brosti svo bara blítt. Mamma greyið var aldrei sátt við kæruleysið í mér og held ég að henni hafi tekist að murka þetta mein úr mér. Ég líkist henni æ meir með hverjum degi og er illa við almennt skipulagsleysi. Er þetta frá móður minni komið eða er ég bara hin týpíska íslenska kona? Margar íslenskar konur hafa sig allar við að sinna starfsframanum, gefa börnunum athygli, vera ástkona, hugsa vel um foreldrana, halda utan um stórveislur; stjórna "heiminum" með annarri hendi og fjölskyldunni með hinni. Svo fáum við lægri laun í smettið, þorum ekki að biðja um meira og sútum niðurlútar á bílaplaninu við Bónus og spyrjum: ,,Hvers á ég að gjalda?"

Eftir erfiðan skóladag fagnaði ég ákaft sólarglætunni sem lýsti upp haustlitina við Tjörnina. Ég fangaði augnablikið og sagði við sjálfa mig að nú skildi ég njóta þess í fimm mínútur. Settist á bekk og andvarpaði. Innst inni blundar í mér lítil Védís sem þolir ekki læti og vill bara slaka á, þrátt fyrir ofanverðar yfirlýsingar. Hins vegar hefur reynslan eflaust kennt mér að tíminn er dýrmætur og með smá skipulagningu tekst manni að gera ótrúlegustu hluti. Hinn gullni meðalvegur er að mínu mati þessi: að vita hvað maður vill án þess þó að eyðileggja sjálfan sig í eltingarleiknum.

Kvenmaður, eða ekki kvenmaður. Maður á að gera kröfur.

V

3 ...og gammar geysa!:

Nafnlaus sagði...

Mín einkunnarorð eru:

"Upp með hendur, niður með brækur!"

Ég segi þetta alltaf þegar ég bið um launahækkun og það virðist alltaf virka...

Bless.

rassi.

Gudrun sagði...

Heyr heyr Védís mín, takk fyrir huggulegan sunnudag með familiunni í Rnb.
Knús
GJ

Nafnlaus sagði...

Ó hvað ég er sammála þér, kannast við að þessar andstæður kallist á innra með manni :)

En við myndum nú ef til vill ekki kunna að meta ró nema að hafa kynnst ys og þys, er það ekki svo ?

Það er svo sannarlega list að lifa :)
kv. GB

Menningarhornið

  • Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
  • Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
  • Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
  • Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
  • Kommúnan, Vesturport *****