hversdags
Jæja, þá er helgin liðin mér til mikillar gleði. Rembihnúturinn sem ég hafði í maganum alla síðustu viku er við það að losna úr læðingi og hversdagsleikinn tekur aftur við í u.þ.b. viku. Skóladagurinn ansi langur á mánudögum og ef það væri ekki fyrir skemmtilegan kennara í löngum, tvöföldum etnógrafíutímum, þá talaði ég tungum og reytti af mér hárið.
Airwaves gekk afar vel, bandið spilaði þétt og fólk var almennt mjög ánægt með þetta held ég. Það var fremur góðmennt, mínar dásamlegu vinkonur voru mættar á kantinn, m.a.s. þær sem búa erlendis og fótafimur Kani fór hamförum á gólfinu við sviðið. Bransafólk lét sjá sig sem ég hafði fundað með áður og því var þetta ákveðin prófraun í miðinu á öllu.
Svona hlutir gerast fljótt og eftir að hafa kíkt á Kenyu, Steed Lord og byrjunina á furðulegri 90's brasilískri rapphljómsveit sem rappaði yfir The Darkness gítarriff.... var haldið heim í kotið. Ég var orðin ansi þreytt en gladdist við að sjá e-mail sem beið mín frá Denzyl Feigelson. Sá er höfuðpaur AWAL dreifingarfyrirtækisins sem sérhæfir sig í að koma sjálfstæðum tónlistarmönnum á framfæri. Hann sagðist fíla efnið mitt og vildi hefja samstarf í kringum hana. Ég sá ljós í myrkrinu og það lýsti upp lánið og yfirdráttinn sem ég ber þungt á bakinu. Veddi var ekki lengi í paradís og við tóku samningaviðræður og pælingar. Ég fundaði svo með markaðsstjóra AWAL, Dominique, í gærdag á KaffiTár og við enduðum í heillöngu spjalli um pólitík á Íslandi, risabyggingar, sagnfræði og British Museum. Að því loknu var samningur ákveðinn og áætluð útgáfa á iTunes um allan heim er 4.desember. Nú er öllum frjálst að senda efni sitt inn á iTunes en það sem AWAL gerir er að það heldur utan um herlegheitin, greiðir allan tilhlýðilegan kostnað og keyrir upp kynningarherferð og markaðssetningu. AWAL fær 15% fyrir sinn snúð og ég tek rest þar sem ég á þetta allt sjálf (eins og leikskólakrakkarnir segja).
Þetta er mikill heiður og léttir að vera laus við plöggið í kringum það. Þrátt fyrir allt er mestöll vinnan eftir en ég er hvergi af baki dottin og hlakka til að taka þetta dásamlega band með mér út í heim til að kynna afurðina.
Ég þakka því yndislega fólki sem var svo heppið að ná sér í band og koma að sjá mig. Þetta var þrusustuð!
V

4 ...og gammar geysa!:
Hæ sæta
Til hamingju með þetta. Þú ert svo mikið æði. Hringi í þig. þín Sonja
Takk fyrir síðast músin mín,
Þetta er alveg æðislegt, frábærar fréttir.
...stolt siglir fleyið mitt,stórsjónum á...
TIL HAMINGJU! en dásamlegt að heyra med samningavidraedurnar! takk fyrir tonleikana astin min, thetta var rosalegt!
knus
B
Elsku Védís, til hamingju með þetta ! Frábært
Finnst svo leiðinlegt að hafa misst af þér um helgina en gott að heyra að tónleikarnir hafi gengið svona vel. Skilum kveðjum til ástmanns og við heyrumst vonandi á næstunni varðandi planeringar fyrir B.
K
Gj og Co.
Skrifa ummæli