bloggum kæru vinir, bloggum!
Blogg er að mínu mati misskilið fyrirbæri ákveðinna kynslóða og þá á ég við eldri kynslóðir sér í lagi. Þjóðfélög og litlu samfélögin innan þeirra þrífast á umræðu. Ekki aðeins þeirri sem er mötuð ofan í mannskapinn í sjónvarpi og öðrum snyrtilega sniðnum miðli, heldur þrífumst við á áliti annarra, skoðunum og þankagangi. Nú er erfitt að kyngja því að þannig sé í pottinn búið, enda erum við Víkingar og harðneitum öllu því sem kennir okkur við ósjálfstæði. Hins vegar þarf þessi fullyrðing mín ekki að þýða ósjálfstæði í sjálfu sér, heldur bendi ég á þá augljósu staðreynd að maður er manns gaman og lífið væri gersneytt öllum litbrigðum ef fólk hefði ekki skoðanir og vettvang til þess að koma þeim á framfæri.
Blogg er að mínu mati frábær útfæring á lýðræði, tjáningafrelsi og því sem telst vera mannréttindi í dag. Blogg eru eins misjöfn og þau eru mörg. Sumir lýsa daufum skoðunum sínum í einni setningu út frá fréttum á mbl.is en aðrir skrifa um pólitík, moða saman smásögur og taka sér jafnvel Carrie Bradshaw til fyrirmyndar úr 'Sex and the city' og fara ítarlega í sódómuna í Reykjavík. Og hvað með það? Fólk má bara hafa sína hentisemi. Ég hef oft heyrt því fleygt að 'fólk hafi ekkert betra að gera' og að þetta sé algjör 'sóun á tíma'. Fyrir mig, persónulega, er þetta afdrep, líkt og að skrifa í dagbókina sína en þar sem þetta fer á alheimsnetið þá ritskoðar maður líf sitt um leið og fær útrás fyrir almenna tjáningaþörf sem hefur fylgt manni frá blautu barnsbeini. Ekki allir hafa þessa þörf og er það vel.
Blogg er einfaldlega skemmtilegur angi af lýðræði. Misnotaður angi á köflum og notaður til ómerkilegra hluta en þannig er einnig í pottinn búið með svo margt annað sem maður les í lífinu. 
V

2 ...og gammar geysa!:
Heyr heyr hervör! ég tharf svo ad bíta í stóru tánna thína...
Alveg er ég sammála þér Védís! Tjáningarþörf og hnýsiþörf eru samofnar og manninum óumflýjanlegar og hana nú.
Vil svo þakka fyrir mig á airwayves, bandið náði einkar vel saman og röddin fékk algerlega að njóta sín. Takk fyrir mig!
Skrifa ummæli