1.11.07

við og við

Ég hef uppgötvað nýtt yndi. Vissi af Ólöfu Arnalds og heyrt smá hljóðprufur af diski hennar VIÐ OG VIÐ... en sat svo stjörf fyrir framan imbann þegar Söngvaskáldakvöld eitt hún var mætt og spilaði af sinni einlægu snilld. Textarnir svo yfirmáta sætir og undarlegir jafnvel á köflum. Ég reyndi að streitast fyrst á móti, sem er einkennilegt af manni, en ég vissi ekki hvað mér ætti að finnast um þessar samsetningar, laglínur, flókna gítarspil og mjúku háu rödd hennar. Fyrr en varir fóru tárin að streyma og þá sérstaklega í lögunum Við og Við, Vittu af mér og Náttsöngur.
Það er svo ljúft að heyra tóna og texta sem snerta mann á skrýtna staði. Ég skoppaði því út í Mál og Menningu og keypti mér eintak, enda ekki annað hægt, þegar svona tónlist er annars vegar. Platan er tenging við þá sem skipta mann mestu máli, eins og ég þekki vel sjálf í mínum lagasmíðum. Hvert lag á sér eiganda. Maður á auðvelt með að tengja við viðkvæman textann.

Ég hugsa til elsku Aldísar, stóru systur þegar þetta lag er á fóninum:

'og árin kvísluðust
áfram gegnum allt
og stundum andaði hlýju
og stundum var kalt
en ég, ég stóð
oftast með þér
af anda og blóði
sama ég er og þú'

Svo fyllir Halli minn huga og hjarta þegar ég hlusta á lagið 'við og við':

'ég hef ekki alla tíð
notið láns að vera fundvís
verið auðtrúa en
stundum undirförul samt

fetað hef ég margan stíg
setið lengur en ég undi
ekki viljað stoppa
fyrr en staðnæmdist við þig
við þig

þegar allt kemur til alls
verður allt annað að engu
þegar allt í mér mætir öllu í þér
viltu vera hjá mér lengur?

...núna bið ég góðan guð
að gæta þess sem upp er sprottið
að það fái að vaxa
þótt annað megi vaxa með'

Mæli með 'essu krakkar. Ég er t.d. að rembast við ritgerðarskrif og þarf að skila hinum ýmsu verkefnum eftir helgi. Ég leyfi Ólöfu Arnalds að hlýja mér yfir þrotlausri innivinnu. Góð plata þegar tekur að rökkva. Kertaljósin hjá mér flökta m.a.s. í takt við músíkina, svo gott er það.

V

0 ...og gammar geysa!:

Menningarhornið

  • Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
  • Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
  • Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
  • Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
  • Kommúnan, Vesturport *****