happy to be here

Móðir mín kær, Bryndís Guðmundsdóttir var að gefa út hugljúfa barnabók sem ber heitið 'Einstök mamma' og fjallar óbeint um uppvaxtarár hennar með heyrnarlausri móður sinni Hervöru, sem ég ber seinna nafn mitt eftir. Við skelltum því saman í áritun á föstudaginn síðasta í útgáfuteiti hennar í IÐU. Ég var sjálf að gefa út plötu 'A Beautiful Life - Recovery Project' og því var þetta hinn sniðugasti viðburður.
Ég hleyp um stræti og torg að plögga plötuna, smýg mér í útvarpið og reyni að kynna þetta eftir bestu getu. Kom fram í Reykjaneshöllinni um helgina með dásamlegri hljómsveit minni og það styttist í útgáfutónleikana 28.nóvember sem verða í Austurbæjarbíói. Miðasala á Midi.is og Austurbæ. Svo treystir maður því að þrotlaus vinna síðasta 1 og 1/2 hárið skili sér í velþóknun fólks á gripnum. En maður veit víst aldrei. Er á meðan er og lífið er fagurt.
Mitt í miðinu á plötuplöggi reyni ég að vera samviskusöm í mannfræðinni í HÍ og sýnist mér þetta ætla að ganga upp. Það kemur í ljós eftir jólaprófin hvort ég sé með dillur um eigin námsgetu eður ei.
Ég sit núna við eldhúsborðið í foreldrahúsum með bauga niður á tær en ég var mætt 5.30 í morgun á Leifsstöð til að árita plötur. Svo endurtek ég leikinn kl.13.00 og flýg sjálf út til Boston kl.17.00. Við förum saman mæðgurnar með ömmu Hervöru og Aldís systir flýgur inn frá Lundúnum til að glensa með okkur. Ég á jafnframt tvo fundi vegna plötunnar úti, svo ég sluksi nú ekki allan tímann og haldi samviskunni hreinni.
Ég hef ekkert sniðugt að segja, fyrir utan almenna tilkynningaskyldu vegna plötunnar. Ég er örugglega ekki skemmtilegasti penninn þessa dagana, en skyldan kallar krakkar mínir...
Þetta selur sig ekki sjálft, eins og Barði Jóhannsson kemst svo vel að orði.
V

4 ...og gammar geysa!:
En yndislegt að geta slegið saman í svona viðburð með mömmu sinni. Spurning hvort ég gefi ekki bara Lalla Jóns það í afmælisgjöf að koma og hlýða á þig á útgáfutónleikum þar sem daginn ber upp á 29 ára afmælið hans. Gangi þér allt sem allra allra best. Knúz og kossar.
takk fyrir ánægjulegt föstudagssíðdegi. Það er kraftur í ykkur mæðgum. Til hamingju með plötuna Védís mín, ég á eftir að hlusta á hana í heild en ég er enn að raula lagið Call me (er það ekki annars rétt nafn?) sem þú tókst í Iðu á föstudaginn. Einstaklega ljúfir og fallegir tónar:)
tótla
Þú ert þrjár konur í einni, Védís Hervör. Það eru ekki margir sem gætu hermt þetta eftir þér.
p.s. takk fyrir sætustu skilaboð ever um daginn. þú ert rúsínubollan mín. krílið gefur þér high five!
XXX. Rakel.
Elsku thú! break legs and hearts in Boston baby!
Skrifa ummæli