6.10.07

kynlegir kvistir

Í skjólsælli smágötu minni í Þingholtunum eru ýmsir kynlegir kvistir. Einkennilegt fólk með einkennilegar áherslur gengur framhjá eldhúsglugganum og dásamleg hljómsveit æfir hér sum kvöld í næsta húsi án þess þó að hrella neinn, heldur spila þeir skottís, Ragga Bjarna og vel valda slagara níunda áratugarins. Þetta þykir mér vinalegt með mesta móti og við heimilisfólkið brosum til hvors annars þegar þeir telja í.
Hins vegar er einn kynlegur kvistur sem ég hef enn ekki áttað mig á og er það því minn uppáhalds kvistur.
Eftir um ársdvöl í íbúð okkar vöknuðum við einn sunnudagsmorgun við ljúfa rödd sem virtist koma utan að götu. ,,Olgaaa" sagði hún blítt, eins og hún væri að vekja lítið barn úti í vagni. Svo stigmagnaðist röddin þar til hún var farin að æpa ,,Olgaaaa" með miklum hamagangi. Við hjúin kúrðum undir sænginni og horfðum skelfingu lostin á hvort annað. Hvað var nú að ske í þessari dásemdar götu okkar? Við hlupum fram í eldhús og pírðum augun út um gluggann. Þar stóð kona um sextugt uppdúðuð í vetrarklæðum. Hún stóð alveg stjörf, hreyfði ekki litla fingur og aðeins kjafturinn hreyfðist við æsinginn ,,OLGAAAAA". Ég kannaðist nú sjálf við svona köll og þóttist vita að hér væri ill móðir að leita að óþekkri unglingsdóttur sinni. Eftir nokkur köll til viðbótar sneri daman svo við á punktinum og gekk burt. Við pældum lítið í þessu og við tók hversdagsleikinn.
Viku síðar vöknum við upp við sömu köll. Engin Olga lét sjá sig og við skildum betur hvernig í pottinn var búið. Nú var þetta orðið nærri daglegt brauð með örfáum undantekningum og fylgdist ég glaðhlakkaleg með sérstöku vinkonu minni þegar hún mætti á svæðið til að kalla á Olgu sína. Svo vakna ég einn morguninn upp við vondan draum þegar ég heyri blíða rödd; ,,Bjarkeeey". Stigmagnaðist hún svo þar til hiti var kominn í leikana. Ég hljóp að glugganum og þar stóð vinkona mín alveg stjörf á nákvæmlega sama stað og kallaði ,,BJARKEEEY". Olga ekki lengur inni í myndinni. Ég var svikin. Saknaði Olgu en er hægt og bítandi að sætta mig við Bjarkey.

V

2 ...og gammar geysa!:

Nafnlaus sagði...

hahahaha einn slaeman vedurdag áttu eftir ad vakna vid: VÉDÍÍÍÍSS

Nafnlaus sagði...

Hahaha...

Kallaðu á móti: "Bjarkey flutti í fyrradag".

Menningarhornið

  • Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
  • Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
  • Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
  • Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
  • Kommúnan, Vesturport *****