17.10.07

þá sjaldan maður kaupir sér fagurt líf



Plata mín "A Beautiful Life - Recovery Project" er komin út í dag á www.tonlist.is 17.10.07 nánar tiltekið hér: http://www.tonlist.is/Music/ViewAlbum.aspx?AlbumID=6354
Ég á öll lög og texta og af þeim á ég einnig lög með Jamie Maher, Michael Fayne og Þórhalli Bergmann. Útkoman er hlý og groovy plata með "dash" af suðrænum blæ. Sigtryggur Baldursson, Róbert Þórhallsson, Reykjavik Sessions Quartet, Jamie Maher, Þórhallur Bergmann, Marion Herrera, Michael Fayne og undirrituð eru meðal spilara á plötunni. Platan var tekin upp beggja megin Atlantshafsins, í London og Reykjavík og afraksturinn er þétt og ómþýtt popp.

Nafn plötunnar vitnar í þá staðreynd að manneskjan er alltaf að þroskast á einhvern hátt og "jafna sig á" áföllum einhvers konar. Hamingjan er ferðalag, ekki áfangastaður, eins og spekingurinn sagði og hef ég tileinkað mér þennan hugsunarhátt. Í mínum huga er auðvelt að finna það góða og fallega í lífinu sama hvað á mann dynur.

Ég mun spila á Airwaves þann 20.10.07, laugardaginn kl.20.30 á Lídó, Hallveigarstíg og það styttist í útgáfutónleika í kjölfarið.

Mér þætti afar vænt um ef áhugasamir segðu öðrum áhugasömum frá netútgáfunni á Tónlist.is, sem ég stend fyrir sjálf undir nafninu Nymph ehf.

Platan mun svo líta dagsins ljós í hörðum eintökum (með fallegri cover bók og tilheyrandi listrænu ívafi) í öllum betri hljómplötuverslunum innan tveggja vikna. Tónlist.is er málið ef fólk vill fá forskot á sæluna beint inn á itunes eða annað, án tilheyrandi pakkninga.

Kíkið endilega á www.tonlist.is undir NÝTT.

V

2 ...og gammar geysa!:

Nafnlaus sagði...

Til hamingju - hlakka til að hlusta!

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með þessa mögnuðu plötu. Er búin að láta hana rúlla tvisvar í gegn í morgun í tölvunni og er alveg að fíla hana ! Frábært, til hamingju aftur :)
Kv.Ása

Menningarhornið

  • Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
  • Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
  • Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
  • Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
  • Kommúnan, Vesturport *****