20.12.07

erkiengill

Ég elska mágkonuson minn, Gabríel. Hann er lítill ljósgeisli. Er í Danmörku yfir jólin núna og ég er miður mín.



Svo horfi ég á myndir af okkur saman og spyr mig hvers konar móðir ég verði eiginlega. Manísk ofverndunarfrík. Mig dreymdi alltaf um að stofna fjölskyldu, a.m.k. 4 krakkakríli í kotið og huggulegan mann sem eldaði mat og var uppátækjasamur. Hann átti að vera alveg eins og pabbi.. en hann mátti þó heita eitthvað annað. Ég er svosum komin hálfa leiðina með þetta.
Eins og við vinkonurnar, Eva og Berglind, vorum sammála um á kjaftatörn okkar í gærkvöldi, þá er ég hræddust við unglingaaldurinn hjá börnunum. Hvað ef maður tjónkar ekki við liðið? Mín versta martröð er að hafa ekki stjórn á hlutunum. Ég vil ekki að þau verði eins og mamma sín, skríðandi út um gluggann á kvöldin þrátt fyrir að vera í straffi og skreppandi í Kringluna þegar ég átti að vera í bókhaldi I.

Meiri vitleysan.

Ein mín besta vinkona er að eignast sitt fyrsta barn í febrúar og ég er að gæla við að æfa mig á krílinu hennar, gera rannsóknir á uppeldisaðferðum. Rakel, ég fer mjúkum höndum um erfingjann. Þetta er allt fyrir vísindin elskan.

V

2 ...og gammar geysa!:

Nafnlaus sagði...

Þú ert ekkert að fara að twixa krakkann minn, Védís Hervör! Þá ertu einu skrefi fjær því að fá að vera guðmóðir...

Þetta verður enginn tilraunakrakki!

rassamamma.

Nafnlaus sagði...

Takk fyrir kjaftatörnina og gleðina. Jeminn hvað þetta var þarft kvöld. En það er nauðsynlegt og hollt að fá að æfa sig, þeim vinkonum er nær sem eignast börn á undan manni, þær sitja bara uppi með að leiðbeina og leyfa manni að prófa.

Menningarhornið

  • Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
  • Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
  • Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
  • Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
  • Kommúnan, Vesturport *****