16.12.07

nostalgía

Ég hef ekki eirð í að lesa. Síðasta prófið mitt þann 18.des. og ég er svo ofvirk að það hálfa væri hálfum of mikið. Ég minnist ljúfra daga í Álftamýri, þegar ég var 12 ára krakki með sumarlykt í nösunum og ekkert að gera nema vera til og búa til mergjaða keppni í hverfinu um það hver hjólaði hraðast upp og niður Safamýri.
Ég ætla að snúa aftur til 12 ára aldursins. Hver nennir að vera 25 ára á þessum síðustu og verstu? Ég hef ekkert við þennan aldur að gera. Ég öfunda litla krakka sem ég hitti fyrir í innkaupaleiðangri í Krónunni. Ég horfi á þau spæld yfir því að vera ekki í þeirra sporum. Mamma þetta, mamma hitt. Mamma, má ég fá súkkulaðirúsínur? Mamma jánkar. Deginum er bjargað og litlu kvikindin rölta út með sældarsvip.
Ég, hins vegar, valdi mér það að húka yfir bókum í Háskólanum og stofna plötufyrirtæki sem gerir mig þreyttari og sveittari en rostung á fylleríi. Ég ýti því kerrunni áfram þung á svip og renn í Appelsínbleytu sem einhver snillingurinn skvetti á gólfið í forláta jólakynningu.

Ég veit alveg að lífið er fallegt og allt er frábært, svona innst inni. En krakkar mínir, jákvæða Védís er farin í frí.


V

4 ...og gammar geysa!:

Nafnlaus sagði...

ohhh védís feeling it here. ég er komin með svo mikið ógeð af sjálfri mér! spáðu hvað Fran er þá komin með nett nóg af krullanum. ég hef breyst í e-a óþolandi týpu og ég ætla að vera hún í nokkra daga til viðbótar. Ég er viss um að kveldi 18. steypist hinn eini og sanni veddi aftur í þig. Nú ef ekki þá kemur Aðaldísin og Ralphie boy = eintóm gleði. Get ekki beðið eftir að bíta bossa í hér halló hér.

Nafnlaus sagði...

Hei þetta batnast allt að kveldi 19. desember þegar þú kíkir út með mér og Berglindi. Pantaði á 101 fyrir okkur ;) Luv EH

Nafnlaus sagði...

juminn, jákvæði dori barker er líka í smá pásu, eða vonandi bara smá. svo undarlegt þegar það koma svona morkin tímabil hjá manni. sem beeeetur fer líða þau hjá og þá sér maður aftur hvað lífið er bjútifúl, maður getur í það minnsta treyst á 5.janúar næstkomandi í þeim efnum ;-) gangi þér rosa vel í síðasta prófinu dugnaðarforkur!

Nafnlaus sagði...

don't blame it on the sunshine, don't blame it on the traffic jam blame it on the háskóli. TIL HAMINGJU MEÐ PRÓFLOK. jákvæði veddi kominn til leiks eller hvad?! ég veit að þú ert einhvers staðar dansandi að breiða út gleðinaaaaaaaaaaaa

Menningarhornið

  • Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
  • Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
  • Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
  • Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
  • Kommúnan, Vesturport *****