gleði líf mitt er
Ég er kát lítil kerling í dag!
Spilaði gott gigg í London, náði að lesa heilan helling fyrir prófin áður en ég sneri aftur til Íslands og massaði fyrsta prófið mitt í etnógrafíu í dag. Fékk 8 í ritgerðinni sem gildir 20% á móti prófinu þrátt fyrir útgáfutónleikastúss og almenna músíktörn vegna plötunnar.
Ég dreif spúsann á Eldsmiðjuna til þess að fagna lífinu. Þó svo að prófunum sé ekki lokið, íbúðin er óskreytt í drasli og ég hef ekki enn haft tíma til að setjast niður og skrifa jólakort... þá fagna ég bara þessu litla líftetri, öllum hæðunum og lægðunum sem því fylgir og fólkinu sem gerir það svo skemmtilegt.
Stundum má maður vera montin af sér. Það segir litla frænka mín.
V

1 ...og gammar geysa!:
vááá monti montsson hér. svona á að gera þetta véfríður. ég ætla að taka mér þig til fyrirmyndar.
Skrifa ummæli