4.12.07

samhjálp

Í kvöld spila ég á Jólafundi Samhjálpar Kvenna - (til stuðnings konum sem greinast með brjóstakrabbamein) og ég hlakka mikið til. Þorgrímur Þráinsson verður með upplestur úr bók sinni 'Hvernig gerirðu konuna þína hamingjusama?' og Elín Richards flytur jólahugleiðingu. Ég ætla að gerast djörf og frumflytja lag eftir mig í kvöld. Ég samdi það fyrst á ensku, en snaraði því yfir á íslensku þannig að úr varð hugljúfur jólatexti. Það heitir Að ári og fjallar um að vera staðfastur með ástvinum sínum ár eftir ár í gegnum súrt og sætt. Svo fékk ég bakþanka því ekki vilja konur sem greinst hafa með brjóstakrabbamein eintóma væmni, er það? En ég tek þá omvendt og spila líka lög af plötunni minni sem eru ef til vill aðeins harðari. Að öllu ofansögðu þá er ég kannski bara þessi væmni lagahöfundur og hristi það ekki af mér, þó ég reyni. Töffaraskapur er fyrir brynjaðar sálir sem geta ekki opnað sig. Ég sannfæri sjálfa mig um þetta sposk á svip með rjúkandi heitt organic chamomile te í annarri hendi.

Flýg til Lundúna í fyrramálið og heilmikið framundan þar, AWAL fundir og stórt gigg á laugardaginn. Ég hef lofað sjálfri mér að glugga í bók og vera samviskusöm fyrir jólaprófin en mikið asskoti kitlar það að sitja bara við arineldinn hjá stóru systur og kjafta á kvöldin.

Ég skaaal standa mig.

V

1 ...og gammar geysa!:

Nafnlaus sagði...

Mér skilst ad thú sért komin heim snúllfrídur. adaldís sagdi mér ad dvölin hefdi verid hressandi mjög.
knúsímús!

Menningarhornið

  • Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
  • Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
  • Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
  • Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
  • Kommúnan, Vesturport *****