3.12.07

ræ ræ ræ

Útgáfutónleikarnir voru með eindæmum vel heppnaðir og margt var um manninn. Svo verður útgáfuteiti haldið síðar með pompi og prakt þar sem maður hafði keyrt sig um of og sá rúmið í hillingum eftir viðburðinn.
Ritgerðarskil í etnógrafíu í dag og ég er enn að moða eitthvað úr þessu.
Ég bauð lestarhópi mínum heim í kvöld þar sem farið verður yfir næstu skref og náð áttum fyrir jólaprófin. Ég fer út til Lundúna á miðvikudaginn og því gefst lítill tími til lesturs, þó svo að ég rogist með bækurnar með mér, þá er einum of mikið á dagskránni til að vera samviskusamur í þeim geiranum.

V

7 ...og gammar geysa!:

Nafnlaus sagði...

hey...Það er eins gott að hún hafi ekki gagnrýnt klappkórinn... Annars ætti hún von á svakalegu eggjakasti....
Vill reyndar svo skemmtilega til að ég er líka ósammála henni.
Held að hún hafi kannski lært skrautskrift í Ísaksskóla og flaggi því grimmt í þessum pistli, slíkar eru lýsingarnar.

Það kann að vera að húsmæður landsins lesi Moggann, flest nútímafólk les hins vegar mbl.is og þar er þennan dóm ekki að finna. Það fólk finnur líka áhugaverða tónlist á netinu, í útvarpinu eða á öðrum vettvangi. Held að það séu ekki svo ýkja margir sem fara út í búð eftir að hafa lesið dóma í Mogganum.

Þessi klappkór selur sig sjálfur Veddi minn.....

Ást og fagurt líf.. það er það sem fólkið í landinu þarf!!!

Aní Spaní

Nafnlaus sagði...

Sæl Védís. Ég þekki þig ekki neitt en hef miklar mætur á þínum hæfileikum. Ég rak augun í þennan dóm og ég hef nú átt þessa plötu í um tvær vikur og hlustað mikið á hana. Mér leið eins og ég væri að lesa dóm um einhverja aðra plötu. Það er eins og stúlkan sú hafi ekki hlustað á plötuna, þetta var svo út úr kortinu. Vildi bara láta í mér heyra því að platan þín er æðisleg!!! Gangi þér vel :)
Sigrún Erla Genck

Nafnlaus sagði...

Sæl Védís, ég þekki þig heldur ekki neitt en var að leita að opinberu vefsíðunni þinni og fann þar link inn á þessa. Ég má bara til með að segja þér að ég elska diskinn þinn og ég hef hlustað á hann á hverjum degi síðan ég fékk hann. Ég er líka búin að kaupa nokkur eintök til að gefa í jólagjafir og ég get lofað þér því að honum verður ekki skipt eftir jólin þar sem fólkið sem ég er að gefa hann mun pottþétt gefa honum tækifæri.
Turning, Happy To Be Here, A Beautiful Life og Harmony eru (enn sem komið er allavega) upáhaldslögin mín á honum. Annars þá finnst mér allir textarnir vera ofsalega góðir og fallegir og ég er líka mjög hrifin af coverinu. Ég keypti In the Caste (minnir mig að hann heiti?) þegar hann kom út en fílaði hann ekki jafn vel og ég fíla þennan en ákvað þó að kaupa þennan nýja þegar ég sá hann úti í búð; án þess að hafa heyrt neitt af honum. Ég sé augljóslega ekki eftir því og ég vona bara að þér gangi allt í haginn. Takk fyrir að gera heiminn að pínulítið betri stað með tónlistinn þinni! :)

Kveðja,
Jóhanna

Nafnlaus sagði...

Hæ hæ:)
Innilega til hamingju með frábæra plötu. Mér finnst hún æði og vil segja þér að mér svelgdist allverulega á þegar ég las gagnrýnina um hana yfir morgunkaffinu. Mér fannst eins og viðkomandi hefði verið að hlusta á eitthvað allt annað en ég! Þú lætur svona vitleysu auðvitað sem vind um eyru þjóta.

Kveðjur í bæinn,

Leuven-Guðrún;)

Single sagði...

Elsku sykurpúðinn minn

Þú og platan þín eru æði.

1000 kossar og knús molinn minn

Nafnlaus sagði...

Védís mín,

Þessar konur hér að ofan segja þér allt sem segja þarf...

Hér er greinilega fólk með viti

Védís sagði...

Almáttugur, það rignir yfir mann aumkun. Krakkar mínir, hafið ekki áhyggjur af Vedda, platan að koma út á iTunes á alheimsvísu og túrar fyrirhugaðir, ekkert nema stemmning. Látum þetta nú kyrrt liggja. Allir mega hafa sína skoðun. Takk fyrir stuðninginn :)

Menningarhornið

  • Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
  • Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
  • Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
  • Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
  • Kommúnan, Vesturport *****